Kúrekar hertaka netið 29. júní 2007 08:30 Vinsældir kántrýútvarpsins eru ótvíræðar og kúreki norðursins var að vonum sáttur. „
Það er mjög gaman að þessu enda er verið að hlusta á þetta alls staðar í heiminum; Kína, Belgíu, Danmörku og svona mætti lengi telja,“ segir Hallbjörn Hjartarson en framtak hans og félaga hjá Útvarpi Kántrýbæ um að setja dagskrána á netið hefur mælst ótrúlega vel fyrir. Talið er að yfir fimm hundruð manns hlusti reglulega á útsendingarnar en samkvæmt vefsíðunni kantry.is eru á milli 900 og 1.000 flettingar á síðunni. Útvarpi Kántrýbæ var lokað í enda febrúar á þessu ári vegna fjárhagsvandræða en ekki var þá loku fyrir það skotið að það yrði opnað aftur. Og Hallbjörn var ekki lengi aftur upp á afturfæturna því í maí tilkynnti hann að útvarpið væri aftur opið og þá á netinu. Hallbjörn var hins vegar ekki par sáttur með þá þjónustu Símans því síðan væri oft og iðulega að frjósa og það ylli nokkrum vandkvæðum við útsendingar. „Ég hellti mér nú yfir þá bara áðan og þeir lofuðu að koma og gera við þetta. Þetta gengur náttúrlega ekki enda er ég búinn að borga fullt verð fyrir þetta,“ segir Hallbjörn sem var að vonum sáttur með vinsældirnar. Hallbjörn segir að hann fái nú ekki mikið af tölvupósti í gegnum netið en þó. Hann kjósi hins vegar ekki að svara erlendum pósti. „Hins vegar er gaman að við kúrekarnir skulum vera hertaka netið,“ bætti hann við og kynnti inn næsta lag.
Mest lesið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Fleiri fréttir Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Sjá meira