Pálmi slasaður eftir hestaferð 28. júní 2007 06:45 Pálmi Gestsson lenti í óhappi í hestaferð í byrjun vikunnar. Hann er nú á batavegi. „
Hann er bara að vakna eftir aðgerðina núna. Þetta fór sem betur fer ekki verr,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, kona Pálma Gestssonar leikara. Pálmi slasaði sig í hestaferð í byrjun vikunnar og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á þriðjudag. Leikarinn góðkunni var í níu daga hestaferð með erlendum ferðamönnum á Norðausturlandi, var reiðmaður með 70 hrossa stóði. Eftir að hestarnir voru hvíldir í Þistilfirði á mánudag reið ógæfan yfir þegar leggja átti í hann á þriðjudagsmorgun. Pálmi lenti á óþekkri meri sem tók á rás áður en hann komst í bæði ístöðin. Hann náði að sitja merina en hentist fram og til baka í hnakknum þangað til hann náði að endingu að kasta sér af baki. „Það sem gerist er að lífbeinið gliðnar um 2-3 sentimetra. Þetta eru víst algeng meiðsli hjá hestamönnum,“ segir Sigurlaug. Pálmi var fluttur með sjúkraflugi suður og gekkst undir aðgerð í gærmorgun þar sem borað var ofan í lífbeinið og það spennt saman. Við tekur minnst vikudvöl á spítala og 6-8 vikna endurhæfing á hækjum. „Hann óttast það mest að missa af hreindýraveiðinni í ágúst. Ég sagði nú við hann að það hefði hingað til enginn farið á hreindýraveiðar í göngugrind,“ segir Sigurlaug og hlær. „Það hvetur hann þó alla vega áfram í endurhæfingunni – að reyna að komast á hreindýraveiðar.“
Mest lesið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Tíska og hönnun „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Lífið Fleiri fréttir Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Sjá meira