Eddie Murphy er pabbinn 25. júní 2007 10:00 Eddie Murphy neitaði frá fyrsta degi að vera pabbi Angel Iris.
Langri bið Melanie Brown er loks á enda því nýlega var henni tilkynnt að pabbi hinnar þriggja mánaða gömlu Angel Iris væri gamanleikarinn Eddie Murphy. Breska götublaðið The Sun greinir frá þessu. Eddie Murphy hefur neitað frá fyrsta degi að hann sé pabbi stelpunnar en dómari í Los Angeles skikkaði Eddie í faðernispróf. Niðurstöðurnar bárust fyrir helgi og er Mel B sögð vera í skýjunum með að þetta skuli vera komið á hreint. Náinn vinur Kryddstúlkunnar segir hana reyndar alltaf hafa vitað að Murphy væri faðirinn. „Og henni finnst ótrúlegt að það skuli hafa þurft DNA-próf til að sýna fram á það," hefur The Sun eftir vininum. „Hún er himinlifandi yfir því að sannleikurinn sé kominn í ljós og ætlar að einbeita sér að því að vera mamma." Mel B himinlifandi að sannleikurinn skuli vera kominn í ljós. Mel og Eddie þóttu á sínum tíma nokkuð undarlegt par og kom það fjölmiðlum í opna skjöldu að þau skyldu stinga saman nefjum. Mel varð síðan ólétt eftir nokkurra vikna samband en Adam var ekki lengi í paradís. Eddie hætti með henni í hollenskum sjónvarpsþætti og krafðist þess að fram færi faðernispróf. Gamanleikarinn lýsti því síðan yfir að ef hann reyndist vera faðirinn myndi hann standa sína plikt. Angel Iris er sjöunda barn Eddie en annað barn Mel sem á stúlkuna Phoenix Chi með Jimmy Gulzar. Samkvæmt The Sun hefur söngkonan verið að hitta kvikmyndaframleiðandann Stephen Belafonte á milli þess sem hún undirbýr endurkomu Spice Girls á föstudaginn í þessari viku.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Fleiri fréttir Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Sjá meira