Ráku rangan mann 24. júní 2007 11:00 Washington, lengst til vinstri, er afar vonsvikinn yfir því að hafa misst „læknaleyfi“ sitt.
Leikarinn Isaiah Washington, sem var rekinn úr læknaþættinum Grey"s Anatomy vegna ummæla sinna um samkynhneigða, segir sjónvarpsstöðina ABC hafa rekið rangan náunga. Washington segir að fyrrum kollegi sinn T.R. Knight hafi ýtt undir það að hann skyldi vera rekinn og í raun og veru hefði Knight átt að vera rekinn í stað hans. Var það einmitt Knight sem kom út úr skápnum skömmu eftir ummæli Washington baksviðs á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar síðastliðnum.Íhugar málshöfðunósáttur Washington brosir ekki jafnbreitt þessa dagana.„Ég verð að hreinsa nafn mitt,“ sagði Washington í samtalið við dagblaðið The Cronicle. „Ég vil byrja á byrjuninni. Ég ætla að leysa frá skjóðunni.“ Washington, sem er að íhuga málshöfðun, hefur sakað Knight um að hafa nýtt sér ummæli sín til að fá launahækkun og stækka hlutverk sitt í þættinum. Washington segist ekki hafa talað niður til Knight vegna kynhneigðar hans er hann reifst við meðleikara sinn Patrick Dempsey, þrátt fyrir að Knight hafi haldið því fram í spjallþætti Ellen DeGeneres. „Það er algjör lygi,“ sagði Washington. „Ég notaði þetta orð í rifrildi við Patrick og baðst afsökunar á því. Við tókumst í hendur og héldum áfram að vinna.“ Mjög vonsvikinnWashington var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín á Golden Globe-hátíðinni af samtökum samkynhneigðra. Baðst hann afsökunar á hegðun sinni og sagðist ætla í meðferð. Auk þess gaf hann út yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir iðrun sinni. „Ég var ekki rekinn fyrir að tala illa um samkynhneigða. Ég gerði allt sem ég sagðist ætla að gera. Ég vildi að allir sæju að ég iðraðist. Ég er ekki reiður, heldur mjög vonsvikinn.“
Mest lesið Hvar eru þau nú? Lífið Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Lífið Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Lífið Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Lífið Mættu á Seyðisfjörð í brúðkaup á Siglufirði Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Lífið Fleiri fréttir Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Sjá meira