Úr lækninum í lögfræði 24. júní 2007 13:00 Ragnar Jónsson útskrifast á næsta ári en Magnús Páll kláraði Masters-námið við HR fyrr í þessum mánuði. MYND/GVA „
Ætli þetta flokkist ekki að einhverju leyti undir elliglöp,“ segir bæklunar- og handaskurðlæknirinn Magnús Páll Albertsson, sem útskrifaðist nýlega með Masters-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, 54 ára að aldri. „Ég og kollegi minn, bæklunarskurðlæknirinn Ragnar Jónsson, störfum að mestu í matsstörfum, sem eru á mörkum læknisfræðinnar og lögfræðinnar. Okkur langaði að öðlast meiri þekkingu í lögfræðihlutanum og ákváðum því að skella okkur saman í námið,“ segir Magnús, spurður um hvað hafi valdið því að miðaldra maður með 12 ára sérþekkingu í læknisfræðum ákvað að setjast á skólabekk á nýjan leik. Eins og áður segir útskrifaðist Magnús nú í sumar en Ragnar útskrifast á næsta ári. „Þetta var mjög strembið en ég rek eigin stofu og gat ráðið mínum vinnutíma þannig að nokkru sjálfur. En þetta var vel þess virði og námið hefur gefið mér nýja sýn á störf lögfræðinga,“ segir Magnús. Ef 14 ára grunn- og framhaldsskólanámi er bætt ofan á háskólanámið fást út samtals 26 ár sem Magnús hefur verið í skóla, eða rétt um helmingur ævinnar. „Það er alltaf gaman að læra eitthvað nýtt,“ segir Magnús og hlær. Spurður um hvort sé skemmtilegri, læknisfræðin eða lögfræðin, segist Magnús ómögulega geta gert upp á milli. „En ég held að þessi blanda fari mjög nálægt því að mynda hinn fullkomna kokteil.“
Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Sjá meira