Lífið

Alþjóðahúsið fékk hjálp úr óvæntri átt

Þýsku og bandarísku viðhaldsmennirnir tóku sig vel út með málningarpenslana í kjallara Alþjóðahússins.
Þýsku og bandarísku viðhaldsmennirnir tóku sig vel út með málningarpenslana í kjallara Alþjóðahússins. Fréttablaðið/Anton

„Við höfum verið að bíða eftir iðnaðarmönnum í nokkurn tíma en þarna fengum við 20 menn sem allir eru þaulvanir. Það munar um minna,“ segir Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahússins, en í fyrradag fengu menn þar á bæ góða hjálp við hin ýmsu iðnaðarstörf frá bandarískum og þýskum viðhaldsmönnum. Viðhaldsmennirnir eru hluti af áhöfn varðskipa sem nú liggja við Reykjavíkurhöfn og vildu þeir endilega láta gott af sér leiða á meðan þeir væru í heimsókn á Íslandi.



„Þeir vilja gefa eitthvað af sér á þeim stöðum sem þeim koma við á og báðu okkur í sendiráðinu að hjálpa sér í því sambandi. Við vissum að Alþjóðahúsið væri að gera upp kjallarann hjá sér og þeir vildu endilega hjálpa,“ sagði Kristinn Gilsdorf, menningarfulltrúi hjá bandaríska sendiráðinu.



Þetta er ekki í fyrsta skipti sem áhöfn frá varðskipum lætur gott af sér leiða því í fyrra fóru menn af bandarísku varðskipi í heimsókn til Barnaspítala Hringsins og fóru í ýmiskonar leiki með börnunum. „Fyrir þeim er þetta hápunktur ferðarinnar, að hjálpa til í löndunum sem þeir heimsækja,“ sagði Kristinn.



Að sögn Einars stóðu viðhaldsmennirnir sig frábærlega í gær og sinntu hinum ýmsu störfum. Meðal annars settu þeir saman hillusamstæður, máluðu, spösluðu, grunnuðu og þrifu. „Þetta var alveg ómetanleg hjálp og sparaði okkur hundruð þúsunda króna,“ sagði Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.