Með fullt hús af brúðum 17. júní 2007 02:00 Helga Ingólfsdóttir gaf Byggðasafni Reykjanessbæjar brúðusafn sitt. Mynd/erling „
Ég hefði orðið að flytja út fyrir rest. Núna kemst ég fyrir heima hjá mér,“ segir Helga Ingólfsdóttir, þroskaþjálfari sem gaf nýlega Byggðasafninu í Reykjanesbæ brúðusafnið sitt. Helga átti orðið tæplega tvö hundruð brúður þannig að þetta er vegleg gjöf til safnsins. Helga byrjaði að safna brúðum fyrir um tíu árum út frá vinnu sinni sem þroskaþjálfi. „Mér finnst við aðeins þurfa að staldra við og hugsa um gildi hlutverkaleiksins. Brúður og bangsar eru oft bestu vinir barnanna en tölvur geta aldrei orðið það.“ Helga tekur þó fram að hún hafi alls ekkert á móti tölvum og hafi notað þær töluvert í sínu starfi. Þær geti þó aldrei komið í staðinn fyrir frjálsan leik og tilfinningatengslin á milli barns og brúðu eða barns og tölvu séu alls ekki sambærileg. Helga segir brúðurnar hafa komið víða að. Hún vann um tíma fyrir Rauða krossinn við að þrífa brúður og hafi fengið eina og eina brúðu í staðinn. Hún fékk þær líka í Góða hirðinum og ýmsum búðum með notaðar vörur. Upphafið að brúðusafninu var að Helgu vantaði eitthvað til að dreifa huganum. „Á meðan aðrir sökkva sér kannski í þunglyndi reyni ég að hafa eitthvað fyrir stafni. Ef mér líður illa reyni ég að gleyma mér í einhverju, með því að hafa eitthvað í höndunum.“ Ástæða þess að Helga ákvað að gefa Byggðasafninu brúðurnar er sú að hún var svo hrifin af því starfi sem Byggðasafnið hefur staðið fyrir síðustu ár. „Ég var búin að sjá margar skemmtilegar sýningar hjá þeim og langaði til að leggja mitt af mörkum.“ Það er ekki mikið til af leikföngum á söfnum landsins en það stendur nú til bóta því að aukist hefur að safnarar á borð við Helgu gefi söfnum leikfangasöfn sín. „Þetta er auðvitað hluti af menningarsögunni. Það hafa meira að segja fundist brúður í grafreitum forn Egypta.“ Helga segir að þó hún sé búin að gefa brúðusafnið sitt sé hún nú ekki alveg hætt að safna. „Þetta er náttúrulega ástríða. Svona söfnunar ástríða deyr ekki svo glatt.“ Brúðusafnið er til sýnis í Bókasafninu í Reykjanesbæ á opnunartímum þess. Þess má geta að sýning á handprjónuðum þjóðbúningum á dúkkur sem Helga gerði eru nú til sýnis í búð Handprjónasambandsins á Skólavörðustíg.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Fleiri fréttir Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Sjá meira