Rektor hélt að um æfingu væri að ræða 14. júní 2007 10:15 Rakel Þorbergsdóttir fréttamaður lét sem ekkert hefði í skorist þrátt fyrir undarlega framkomu rektors. MYND/Ríkisútvarpið
Margir áhorfendur kvöldfrétta RÚV í fyrrakvöld ráku upp stór augu þegar þeir urðu vitni að afar undarlegri hegðun Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í beinu sjónvarpsviðtali. Verið var að spyrja Kristínu út í nýútkomna skýrslu Ríkisendurskoðunar og var rektor sífellt að laga á sér hárið auk þess sem hún beinlínis hló að spurningum fréttamannsins Rakelar Þorbergsdóttur,. Ýmsar tilgátur heyrðust á kaffistofum og bloggsíðum landsins í gær um hvað hefði verið að hrjá rektor í viðtalinu, meðal annars að Kristín hefði fengið flugu í augað. Hið rétta er að rektor stóð í þeirri trú að um æfingu væri að ræða. „Og ég áttaði mig ekki á því fyrr en viðtalið var búið að svo var ekki. Þetta var einfaldlega miskilningur og það láðist að láta mig fá merki um að við værum í loftinu. Og nei, þetta var ekki fluga. Ég var bara að laga mig til,“ sagði Kristín og skellihló þegar hún útskýrði málið fyrir Fréttablaðinu í gær. „Þetta hefur verið mikið skemmtiefni hér í skólanum í dag og það er búið að gera mikið grín að mér.“ Líkt og rektor gat Rakel leyft sér að sjá spaugilegu hliðina á uppákomunni í gær. „Ég er búin að vera hjá Rúv í 8 ár og aldrei lent í öðru eins,“ sagði Rakel ennþá í sjokki. „Henni brá eðlilega mikið þegar ég sagði henni að við hefðum verið í beinni en hún tók þessu alveg frábærlega vel. Við gátum allavega hlegið mikið að þessu.“
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Tónlist Fleiri fréttir Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Sjá meira