Hassið átti ekki við Ingibjörgu Sólrúnu 8. mars 2007 10:45 Ingibjörg Sólrún reykti hass fyrir þrjátíu árum og það var ekki málið.
Formenn stjórnmálaflokkana eru teknir í yfirheyrslu í nýju Mannlífi. Þar kemur meðal annars fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur prófað að reykja hass og þrír formannanna segjast ekki vita hvað BDSM er. „Ég prófaði hass fyrir meira en 30 árum og ákvað að láta það alveg eiga sig. Það er mun skaðlegra en margir vilja vera láta,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir aðspurð hvort hún hafi prófað fíkniefni. Þetta kemur fram í nýju Mannlífi en þar hafa menn nú stokkað upp. Nýir ritstjórar eru Þórarinn Þórarinsson og Reynir Traustason. Útgáfudögum verður fjölgað, tímaritið kemur fram á þriggja vikna fresti nú og verður fréttatengdara en áður hefur verið. Guðjón arnar, STeingrímur og jón Þessir stjórnmálaforingjar hafa ekki grænan grun um hvað BDSM er. Í þessu nýja tímariti eru stjórnmálaforingjarnir fimm spurðir spjörunum úr, allir fá þeir sömu fjölskrúðugu spurningarnar til að moða úr og eru svörin forvitnileg. Þannig kemur fram að Ingibjörg Sólrún er sú eina sem segist hafa prófað fíkniefni að frátöldu áfengi og tóbaki. Hún fellur ekki í þá sömu gryfju og Bill Clinton sem svaraði sömu spurningu á þá leið að hann hefði prófað að reykja „jónu“ en ekki ofan í sig – og var mikið skopast með. Annað sem má heita sérlega forvitnilegt er að Guðjón Arnar Kristjánsson, foringi Frjálslyndra, veit ekki hvað BDSM er. Og því síður Jón Sigurðsson, foringi framsóknarmanna, sem tekur vel utan um svar sitt: „Ég hef alls enga hugmynd um það. Er þetta ensk skammstöfun eða íslensk?“ Og Steingrímur J. Sigfússon er einnig úti á túni: „Hef ekki hugmynd um það og veit ekki til þess að sú fáfræði hafi komið að sök.“ Ingibjörg Sólrún svarar hins vegar: „Sérkennileg kynlífshegðun sem byggist á valdi og undirlægjuhætti.“ Sem hlýtur að teljast nálægt lagi. Geir H. Haarde er á svipuðu róli og Ingibjörg. En heita má sérkennilegt, í ljósi gríðarlegs fréttaflutnings af málefnum Byrgisins, þar sem einmitt BDSM-kynlíf kom mjög við sögu, að þeir Jón, Steingrímur og Guðjón Arnar viti ekki hvað um ræðir.
Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira