Svefndrukkinn Ari Matt klessti bílinn 8. mars 2007 08:00 Framkvæmdastjóri SÁÁ leikur Gylfa meðferðarfulltrúa í kynningarmyndinni Örstutt jól. „
Ég var búinn að vera vakandi alla nóttina og var á leiðinni í vinnuna. Kom út af mölinni og á malbik en gerði mér enga grein fyrir hálkunni og keyrði út af," segir Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri SÁÁ. En hann varð fyrir því óláni að keyra Renault-bifreið út af skammt frá Kaldárseli. Bíllinn var allur beyglaður og brotinn en Ara varð ekki meint af. Hann gat keyrt bifreiðina í bæinn þar sem hún bíður nú viðgerðar. Ari var að leika í kynningarmyndinni Örstutt jól sem er ætlað að kynna og afla fjár fyrir kvikmyndina Rauð jól sem á að vera fyrsta íslenska splatter-myndin. Ari leikur Gylfa meðferðarfulltrúa sem fer með hóp ungmenna á heimili yfir jólin en þau eiga það öll sameiginlegt að hafa átt í erfiðleikum með áfengi og fíkniefni. Og ferðin er hugsuð til að halda þeim frá Bakkusi og bullinu yfir hátíðirnar. „En þau hitta því miður á röng jól," segir Ari en í myndinni eru leikarar aflimaðir, afhausaðir og bókstaflega rifnir á hol. „Það var því mikið blóðgos þarna um helgina," bætir Ari við. Tökustaðurinn kann að koma mörgum spánskt fyrir sjónir, sjálfar sumarbúðir KFUM og K þar sem boðskapur séra Friðriks Friðrikssonar um náungakærleik er í hávegum hafður. Árni Jónsson ætlar að búa til fyrstu íslensku splatter-myndina sem ber heitið Rauð jól. Árni og Ari eru því orðnir nokkuð gott teymi því nýlega vann Icelandair-auglýsingin verðlaun sem besta sjónvarpsauglýsing ársins á árlegri uppskeruhátíð ÍMARK. Árni leikstýrði henni en Ari var, eins og margir eflaust muna, ákaflega eftirminnilegur í hlutverki dagdrauma-náungans. „Já, kannski að maður verði alltaf fyrsti valkostur hjá honum ," segir Ari.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira