Lífið

Ómar kærir Gauk fyrir meiðyrði

Ómar R. Valdimarsson vill fá að vita hvar mörkin í netskrifum liggja.
Ómar R. Valdimarsson vill fá að vita hvar mörkin í netskrifum liggja.

„Ágætt er að fá á hreint hvar mörkin liggja. En ég hef að öðru leyti kosið að tjá mig ekki um málið meðan það er til meðferðar hjá dómstólum,“ segir Ómar R. Valdimarsson, ræðismaður og kynningarfulltrúi. Hann vísar til þess að menn séu ábyrgir orða sinna jafnt á netinu sem annars staðar.

Lögmaður Ómars, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefur nú lagt fram kæru á hendur Gauki Úlfarssyni kvikmyndagerðarmanni þar sem hann er sakaður um meiðyrði. Farið er fram á tvær milljónir í skaðabætur auk átta hundruð þúsunda til að birta dómsúrskurð í þremur dagblöðum.

Málavextir eru þeir að Ómar leiddi að því líkur á bloggi sínu að Paul Nikolov, þingmannsefni VG, væri Netverji sem hélt því fram að Aron Pálmi ætti að rotna í fangelsi fyrir kynferðis­brot sitt. Ómar spurði hvort þessar skoðanir samræmdust stefnuskrá VG. Gaukur tók upp þykkjuna fyrir Nikolov og sæmdi Ómar nafnbótinni „rasisti“ og því vill Ómar ekki una.

„Ég er ákaflega óttasleginn og fer nú bara að fara niður á fasteignasölu og skrái íbúðina á sölu. Gjaldþrot blasir við,“ segir Gaukur og sér ekki af hverju hann ætti að biðjast afsökunar þó í kærunni komi fram að þetta hafi fengið mjög andlega á Ómar og hann beðið álitshnekki.

„Þetta er bara lögfræðingagrín, kjánalegt því þetta er Ísland og tíðkast hér að fólk rífist svoítið en svo er það búið. En það blasir greinilega við einhver nýr veruleiki sem stafar kannski af of miklu áhorfi á CSI og Law & Order.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.