Landbúnaðarráðherra klæðist kindinni 9. maí 2007 10:00 Gulli í Ósóma afhenti landbúnaðarráðherranum bolinn í hádeginu í gær. MYND/GVA „
Þetta er óskaplega skemmtilegt og íslenska sauðkindin er mikið módel,“ segir Guðni Ágústsson en Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, annar eigandi bolabúðarinnar Ósóma, afhenti landbúnaðarráðherranum eitt stykki Kind-bol í gær. Eins og fram kom í Fréttablaðinu fyrir skömmu notast ungir framsóknarmenn við íslensku sauðkindina í sinni auglýsingaherferð fyrir alþingiskosningarnar en þau Þórdís Claessen og Gulli í Ósóma hafa gert kindina nánast ódauðlega í reykvískri götutísku með kindarbolum sínum. Bauðst Þórdís í kjölfarið til þess að gefa landbúnaðarráðherranum alvöru kindarbol enda hefði það verið langþráður draumur hjá henni. Og nú hefur hann ræst. „Mér þótti mjög vænt um þetta boð því mér þykir mjög vænt um íslensku sauðkindina,“ sagði Guðni en bolurinn sem hann fékk er grænn eins og litur Framsóknarflokksins. „Við getum étið kindina upp til agna og svo er ullariðnaðurinn í miklum blóma enda unga fólkið allt í ullarpeysum um þessar mundir,“ sagði hann. „Og það er eitt sem er svolítið merkilegt við íslensku kindina og það er að hún er í eðli sínu íslensk en líka ákaflega alþjóðleg. Og þannig nær hún til hjarta allra,“ bætir Guðni við. „Svo er íslenska kindin líka í tísku og ég vil tolla í henni.“
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira