Leikstýrði setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins 14. apríl 2007 12:15 Þorleifur Arnarsson var fengin af góðum vinum til að gefa skipuleggjendum Landsfundar Sjálfstæðisflokksins góð ráð með setningarathöfnina. MYND/Rósa
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins stendur yfir í Laugardalshöll þessa helgina. Og eins og lesendur Fréttablaðsins hafa séð er ekkert til sparað við umgjörð hans enda um að ræða einn stærsta fund ársins. Geir H. Haarde flutti á fimmtudaginn ræðu sína til flokkssystkina sinna og var eftir því tekið hversu glæsileg innkoman var hjá frambjóðendum flokksins fyrir alþingiskosningarnar í maí. Og þá ekki síður hversu allt virtist vera vel skipulagt, einhvern veginn allt á sínum stað. Þetta er engin tilviljun því skipuleggjendur landsfundarins fengu félaga sinn, leikstjórann Þorleif Arnarsson, sem er við nám í Berlín, til liðs við sig og báðu hann um góð ráð fyrir setningaratriðið. Þorleifur tekur skýrt fram að hann hafi ekkert með eiginlega skipulagningu fundarins að gera. „Enda eru það mér eldri og reyndari menn sem hafa séð um þá hlið málsins,“ útskýrir hann. Hann viðurkenndi þó að hann hefði komið að uppsetningu sviðsins. „Því það skiptir máli hvar hlutirnir og ræðumenn eru staðsettir. Þetta er alls ekki svo ólíkt leikhúsinu þar sem sviðsmunir og leikarar þurfa að vera á réttum stað,“ útskýrir hann og bætir að mesta framlagið hafi verið söngatriðin sem hljómuðu við upphaf fundarins. Aðalleikararnir Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins tóku sig vel út á sviðinu í Laugardalshöll og léku sitt hlutverk ákaflega vel.fréttablaðið/Anton „Leikhús gengur á hughrifum. Það var til að mynda góð stemning fyrir því að láta frambjóðendur koma saman uppi á sviði og láta það marka upphaf kosningabaráttunnar og ná um leið fram einhverjum hughrifum. Við leikgerðum í raun þessa innkomu með góðum og gildum leikhúsaðferðum,“ útskýrir Þorleifur. Þorleifur segist aðeins hafa kynnt sér landsfundi bandarísku flokkanna tveggja, repúblíkana og demókrata, fyrir fundinn. Þeir eru frægir fyrir hvers kyns sýndarmennsku enda segir leikstjórinn þá fundi meira í ætt við afþreyingu heldur en pólítík þar sem hugmyndin sé að selja einhverja pakka-ímynd. Og slíkt á ekki upp á pallborðið hjá Þorleifi. „Íslendingar krefjast þess sem betur fer enn að það sé innihald og tenging á þessum fundum. Og vilja ekki sjá hvítar dúfur og sprengingar. Okkur langar ekkert í slíkt og getum í raun ekki leyft okkur slíka hluti,“ segir Þorleifur. Hann segist hafa það á tilfinningunni að stjórnmálaflokkar séu í sífellt meira mæli farnir að nýta sér hæfni og krafta fagfólks í hinum listræna geira. „Þú færð ljósameistara til að stjórna ljósunum, skáld til að skrifa ræðu. Af hverju ekki leikstjóra til aðstoða við sviðsetningu?“
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira