Eurovision liður í sjálfstæðisbaráttu 10. apríl 2007 11:00 Segist styðja Palestínu í hvaða vitleysu sem er - ekki síst Euroivison-vitleysu „
Ég styð þá í hvaða vitleysu sem er eins og þar stendur. Sjálfsagt, fyrst keppnin hefur teygt sig svo langt landfræðilega að Ísraelsmenn eru með, að Palestínumenn taki líka þátt. Hafi þeir áhuga á því,” segir Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður félagsins Ísland-Palestína. Palestínumenn hafa nú lýst yfir áhuga á að taka þátt í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva EBU og hefur aðildarumsókn verið send til EBU. Embættismenn í Ramallah segja að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, styðji þetta framtak og vonist til að Palestínumenn fái að taka þátt í keppninni að ári. Sveinn Rúnar segir að þeim veiti ekki af hverju tækifæri sem er til að minna á tilvist sína. Þátttaka Ísraelsmanna hafi verið partur af „mjúka stríðinu”. Að draga að sér jákvæða athygli. „Ekki hefur Ísraelstjórn veitt af. Palestínumenn hafa verið að freista þess að taka þátt í öðru sambærilegu svo sem tilnefningu til Óskarsverðlauna en þar var fyrirstaða á þeim grundvelli að tillagan kæmi ekki frá sjálfstæðu ríki. Ég geri ráð fyrir því að þátttaka í Eurovision sé liður í baráttu fyrir sjálfstæði og viðurkenningu.” Sveinn Rúnar segist reyndar ekki vera mikill aðdáandi þess fyrirbæris sem söngvakeppnin er þó hann hafi fallið fyrir einu og einu lagi. En þetta sé náttúrlega ágætis fólk sem að þessu standi. Þar með talinn Sveinn Rúnar Sigurðsson. „Já, okkur hefur verið ruglað saman. Það hefur gengið svo langt að mér hefur verið óskað til hamingju með þessi lög hans. Og sumir blaðamenn hafa breytt nafni hans og sögðu Hauksson. Mátti þá vart á milli sjá hvor var ósáttari við það: Ég að vera orðinn einhver Eurovisionhöfundur og hann að missa af sinni Eurovision-frægð. En ég kannast aðeins við hann Svein Rúnar, skemmtilegur og skapandi.”
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira