Örvhenti urriðinn reyndist lax 5. apríl 2007 12:15 Þegar þessi mynd var tekin stóð Siggi í þeirri meiningu að hann héldi á stærsta urriða sem hann hefði veitt. „
Hvað er lax að flækjast í Minnivallalæk í Landsveit? Mér fannst hann reyndar laxlegur. Urrrlax,“ segir Sigurður Sveinsson, handboltakappi með meiru. Fréttablaðið greindi skilmerkilega frá því að Sigurður hefði sett í býsna stóran fisk í Minnivallalæk, sem er frægur urriðaveiðistaður. Fimmtán punda bolta. En þegar menn til þess bærir fóru að rýna í myndina sem birtist af Sigga hróðugum með risaurriðann sinn, sem hann reyndar hélt fram að væri örvhentur, sáu menn að þarna var kominn lax en ekki urriði. „Já, veiðigeirinn segir að þetta sé vel alinn niðurgöngulax eða hoplax. Vel í holdum. Þegar ég fór að rýna betur í myndina kom þetta í ljós. Ég vissi bara ekki að það væri lax í Minnivallalæk. Hvað þá urrlax,“ segir Siggi spurður hvernig það megi vera að svona reyndur veiðimaður og hann hafi ruglað saman laxi og urriða. „Já, já, menn eru að hlæja að mér. Ég líka. Eins gott að hann fór ekki á platta þessi. En yfirleitt er lax orðinn bjartur á vorin en þessi var dökkur. Mjög urriðalegur. En ég er niðurbrotinn maður,“ segir Siggi. Og enn stendur það þá að stærsti urriðinn sem handboltakappinn snjalli hefur dregið er níu pund en ekki fimmtán og sá silungur var veiddur í Þingvallavatni.
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Menning Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira