Lífið

Gís send heim

Ellý og Guðbjörg fögnuðu en Palli og Gís voru sorgmædd þegar úrslitin lágu fyrir á föstudagskvöld.Fréttablaðið/Sigurjón Ragnar
Ellý og Guðbjörg fögnuðu en Palli og Gís voru sorgmædd þegar úrslitin lágu fyrir á föstudagskvöld.Fréttablaðið/Sigurjón Ragnar

Mikil spenna var í Vetrar­garðinum í Smáralind á föstudagskvöld þegar ljóst varð hvaða atriði kæmust í þriggja manna úrslitin í X-Factor. Að þessu sinni höfðu dómararnir ekkert að segja um úrslitin, atkvæði þjóðarinnar réðu öllu.

Þjóðin kaus að senda þær Guðnýju og Írisi, sem skipa dúettinn Gís, heim. Þar með er ljóst að í þriggja manna úrslitunum verður eitt atriði frá hverjum dómara; Hara frá Páli Óskari, Jógvan frá Einari Bárðar og Guðbjörg frá Ellýju.

Mikil dramatík braust út þegar úrslitin voru kunngjörð. Guðbjörg og Ellý fögnuðu dátt en Gís-stöllur fengu uppörvandi faðmlag frá Palla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.