Afþakkaði afmælisboð 25. mars 2007 07:00 Tónlistarmaðurinn Elton John heldur upp á sextugsafmæli sitt í dag.
Ragnheiði Hanson, sem skipulagði tónleika Elton John á Laugardalsvelli hinn 1. júní árið 2000, var á dögunum boðið í sextugsafmæli breska tónlistarmannsins Elton John, sem verður haldið í Madison Square Garden í New York í kvöld. Þar mun Elton flytja öll sín þekktustu lög fyrir framan vini sína og vandamenn. Ragnheiður ákvað að þekkjast ekki boðið en fara þess í stað til Ítalíu í afslöppunarferð. Hún segir Elton hafa verið mjög viðkunnanlegan er hún hitti hann á sínum tíma. „Hann var afskaplega fínn og skemmtilegur. Hann var með húmorinn í lagi og reytti af sér brandarana," segir Ragnheiður. Elton stoppaði stutt við hér á landi og flaug út með einkaflugvél sinni strax eftir tónleikana. Náði hann þó að svala glerlistaráhuga sínum á þeim klukkutímum sem hann hafði aflögu. „Hann hefur greinilega mikinn áhuga á gleri og hann keypti sér eitthvað af gleri og dóti, þannig að hann reyndi að fá eitthvað frá landinu. Síðan sagðist hann vilja koma aftur hingað til að skoða sig um." Talið berst þá að afmælistónleikum Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, þar sem Elton tróð óvænt upp. „Mér var ekki boðið, því er nú verr og miður. Ég hefði alveg verið til í að mæta," segir Ragnheiður og hlær. Ragnheiður skipulagði útitónleika Elton á Laugardalsvellinum sumarið 2000. Elton John fæddist í bænum Pinner í Middlesex-sýslu á Englandi. Var hann skírður Reginald Kenneth Dwight en breytti nafninu síðar í Elton Hercules John. Hann hefur gefið út fjölmargar plötur í gegnum tíðina og á meðal þekktustu laga hans eru Crocodile Rock og Candle in the Wind. Ragnheiður segist eiga mörg uppáhaldslög með Elton. „Daniel er æðislegt og líka Someone Saved My Life Tonight. Þessi ferill hans hefur verið alveg æðislegur og hann er frábær tónlistarmaður. Hann er æðislega flottur á tónleikum og spilaði í þrjá klukkutíma hér, sem eru lengstu tónleikar sem hafa verið haldnir á Íslandi. Hann hefur gífurlegt úthald og að spila í þrjá klukkutíma er alveg stórmerkilegt," segir hún.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira