Kiddi Bigfoot opnar Gauk á Stöng á ný 25. mars 2007 12:00 Plötusnúðurinn og athafnamaðurinn Kiddi Bigfoot hefur keypt Gauk á Stöng og opnar hann innan tíðar. „
Ég er að vinna í plönunum, skoða hverju ég ætla að breyta. Staðurinn opnar svo eftir rúmlega mánuð,“ segir Kristján Jónsson, betur þekktur sem Kiddi Bigfoot, sem keypt hefur rekstur skemmtistaðarins Gauks á Stöng af fasteignafélaginu Eik. Gaukurinn hefur verið lokaður síðustu mánuðina en það mun breytast innan tíðar. Kiddi segir að hann sé kominn með nokkrar hugmyndir á blað um hvernig stað hann hyggist reka í húsnæði Gauksins. Til að mynda sé mjög ofarlega á lista að þar fái hljómsveitir inni fyrir tónleikahald, en talsvert hefur verið rætt um skort á tónleikastöðum í borginni eftir að Gauknum var lokað í fyrra. Að svo komnu máli liggur ekki einu sinni fyrir hvað staður Kidda muni heita. „Nafnið Gaukur á Stöng er í eigu þriðja aðila svo það á eftir að skýrast. Það væri auðvitað óskandi að svo færi, þetta er bæði sögufrægt nafn og hús,“ segir Kiddi, sem sjálfur býr yfir mikilli reynslu úr skemmtanalífsbransanum. Hann hefur starfað sem plötusnúður til margra ára á velflestum skemmtistöðum borgarinnar. Kiddi fær húsnæðið afhent um næstu mánaðarmót. Líklegt er að fyrst um sinn verði einungis notast við efri hæðina. Heimildir Fréttablaðsins herma að ástæða þess sé sú að Framsóknarflokkurinn hafi falast eftir neðri hæðinni fyrir kosningaskrifstofu. „Fólk hefur falast eftir húsnæðinu,“ segir Kiddi leyndardómsfullur.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira