Lífið

Sandler hljóp í skarðið

Gamanleikarinn Adam Sandler hljóp í skarðið fyrir David Letterman þegar hann veiktist skyndilega í maga og gat ekki stjórnað kvöldþætti sínum. Sandler átti að vera aðalgestur þáttarins þar sem hann ætlaði að kynna mynd sína Reign Over Me.

Samþykkti hann að stjórna þættinum og fékk í staðinn Don Cheadle, sem leikur með honum í Reign Over Me, til að vera aðalgesturinn. Veikindi Lettermans voru ekki talin alvarleg og því mun Sandler varla stjórna fleiri kvöldþáttum fyrir hann í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.