Gráta næstum á hverjum degi 25. mars 2007 11:00 Félagarnir Eyfi og Stebbi hafa fengið góðar móttökur á tónleikaferðalagi sínu.
Tónleikaferð þeirra Eyjólfs Kristjánssonar og Stefáns Hilmarssonar um landið til að kynna plötuna „Nokkrar notalegar ábreiður“ hefur gengið mjög vel. „Þetta er alveg með ólíkindum. Við förum næstum því að gráta á hverjum degi, við erum svo hrærðir. Stebbi hefur líka aldrei farið í svona ferð og honum finnst þetta mjög gaman,“ segir Eyfi. „Við erum búnir að hitta svo mikið af góðu fólki og við höfum líka spilað í fjórum kirkjum, sem er svolítið nýr vinkill hjá okkur. Okkur finnst það æðislega gaman og þetta hentar okkur vel. Við erum að flytja oft á tíðum viðkvæma tónlist sem þarfnast hlustunar. Í kirkjum hlusta allir,“ segir hann. „Við spiluðum á Ólafsfirði á veitingastað og þangað mættu 150 manns. Það var ótrúlega góð stemning og fólk hlustaði bara. Við höfum svo mikið verið í prívat giggum og kannski bara verið að spila í hálftíma. Núna er þetta ríflega tveggja tíma dagskrá og við erum að spila kannski 25 lög.“ Tónleikaferð þeirra Eyfa og Stebba er hvergi nærri lokið og framundan er spilamennska í Vestmannaeyjum þann 30. mars og á Selfossi 2. apríl. Á efnisskrá þeirra félaga eru m.a. Eurovision-lögin sígildu Nína og Ég lifi í draumi. Spurður um nýja Eurovision lagið, Ég les í lófa þínum, segir Eyfi það ekki hafa gripið sig til að byrja með. „Núna er ég búinn að heyra það nokkrum sinnum og það verður bara betra og betra. Eiki gerir þetta vel, hann er svo góður söngvari og gerir mikið fyrir lagið. Það lekur lífsreynslan úr hverjum tón,“ segir hann og hlær. „Hann er pottþéttur „live“ og það er gaman að einhver svona reynslubolti skuli fara út.“ - fb
Mest lesið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Tónlist „Er ég að klikka strax í 50?“ Lífið Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Tíska og hönnun Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lífið „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Lífið Fleiri fréttir Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Sjá meira