Spaugstofan í loftið með þrjúhundruðasta þáttinn 23. mars 2007 06:30 ótrúlegt úthaldloftið með sinn þrjúhundruðasta þátt á morgun. MYND/Anton „
Já, þetta er mikill áfangi. Sami mannskapurinn frá upphafi. Ég held, án þess að hafa rannsakað það vísindalega, að þetta sé einsdæmi,” segir Pálmi Gestsson, sérlegur blaðafulltrúi Spaugstofunnar. Mikill áfangi í sögu Spaugstofunnar, og reyndar sjónvarps á Íslandi ef því er að skipta, er nú í uppsiglingu. Á laugardaginn verður 300. þáttur Spaugstofunnar sýndur. Úthaldið er einstakt. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að erlendir kvikmyndagerðarmenn horfi með furðu til hinnar miklu framleiðni og átti sig engan veginn á því hvernig þetta er hægt. Og áhorfskannanir sýna ítrekað að Spaugstofuþættirnir eru það sem fólk horfir á – Spaugstofan trónir ávallt á toppnum. Aðspurður segir Pálmi langt því frá að mannskapurinn sé orðinn þreyttur. „Okkur vex ásmegin ef eitthvað er. Við erum rétt að byrja. Eflaust einhverjum til mikillar skelfingar. En vonandi ekki öllum.” Hópurinn sem skipar Spaugstofuna; Pálmi, Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason, hefur verið að í þessari mynd frá 1989. En Spaugstofan varð til sem fyrirbæri árið 1985. Spaugstofumenn eru í virkri stjórnarandstöðu og styðjast við sannfærandi kenningar þess efnis að þannig beri fjölmiðlum að taka sér stöðu. Pálmi segir Spaugstofuna verða beittari með árunum ef eitthvað er. Og nefnir sem dæmi að framsóknarmenn, og einkum fyrrverandi forsætisráðherra, hafi kvartað sáran undan því að ekki hafi verið farið um sig og flokkinn blíðum höndum í þáttunum. „Persónulega finnst mér við bestir þegar við rýnum í mál sem einhverju skipta, skoðum þjóðþrifamál frá fleiri sjónarhornum en gert er af ráðamönnum. Já, ég tek þetta hlutverk okkar háalvarlega og við mig hafa mætir menn sagt, og það þykir mér vænt um, að við séum eina alvöru gagnrýniröddin í íslenskum fjölmiðlum.” Margs er að minnast frá löngum og fræknum ferlinum en óneitanlega eru atvik sem hafa náð út fyrir rammann eftirminnilegri en önnur. Eins og þegar Spaugstofan lenti í yfirheyrslum hjá rannsóknarlögreglunni vegna meints guðlasts sem og þegar þeir voru kærðir fyrir klám. „Já, það var eitthvað sem Kristján Ólafsson „pornó dog” hafði viðhaft. En ég get ómögulega nefnt eitthvað eitt umfram annað.” Spaugstofan bregður ekki út af vananum í tilefni þrjúhundruðasta þáttarins. Heldur sömu virðulegu hógværðinni og jafnan að sögn Pálma. Ekki hefur enn verið gengið til samninga við Pál Magnússon útvarpsstjóra RÚV ohf. hvað varðar næsta vetur en Spaugstofan hættir í næsta mánuði. Pálmi telur að fyrir liggi vilji beggja aðila að skoða áframhaldandi samstarf. Engan bilbug sé að finna.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira