Valdís tekur sig aftur á flug 22. mars 2007 06:15 Ætlar að endurnýja kynnin við flugfreyjustarfið eftir tæplega tuttugu ára hlé. „
Af hverju ekki? Ég er orðinn 47 ára og hugsaði með sjálfri mér að annað hvort er það núna eða aldrei,“ segir útvarpskonan góðkunna Valdís Gunnarsdóttir sem stundar nú nám í Flugfreyjuskólanum. „Ég var flugfreyja hjá Iceland Air á árunum 1985 til 1990 en hætti vegna anna í útvarpinu. En mig hefur alltaf langað til að fara aftur enda er þetta starf sem heldur alltaf í mann. Kannski að það lúti sömu lögmálum og hjá skátunum; einu sinni flugfreyja, alltaf flugfreyja,“ segir Valdís. Útvarpskonan fékk þó enga sérmeðferð þrátt fyrir fyrri reynslu, mætti í inntökuprófið ásamt ellefu hundruð öðrum stelpum og strákum. Þar á meðal Jónsa úr Svörtum fötum. „Ég var bara eins og hver annar byrjandi, fór í inntöku-og tungumálaprófið og allt heila klabbið. Og núna er ég bara æðislega þakklát og auðmjúk fyrir að hafa verið tekinn inn og hlakka til að hitta gamla starfsfélaga,“ segir Valdís Útvarpskonan viðurkennir að hún standi á ákveðnum tímamótum. Sunnudagsþáttur hennar á Bylgjunni hefur verið í loftinu um þó nokkurn tíma og hún íhugar nú alvarlega að leggja útvarpið á hilluna. „Ég held áfram með þáttinn fram á vor og ætla síðan að sjá til með haustinu hvort grundvöllur sé fyrir frekara samstarfi,“ segir Valdís. Hún bjóst þó ekki við því að farþegar fengju að heyra hljómþýða rödd hennar í flugvélunum strax. „Þegar maður er nýliði þá fær maður ekkert að gera slíkt heldur er það í verkahring hinna eldri og reyndari. En ég er hrædd um að það verði níðst á mér,“ segir Valdís og hlær, bætir því síðan við að á sínum tíma hafi ófáir farþegarnir haft það á orði að þegar Valdís bauð þá velkomna um borð hafi þeim strax liðið eins og þeir væru komnir heim. „Og það yljaði mér um hjartaræturnar.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira