Stjörnuger í afmæli Einars Bárðar 22. mars 2007 09:00 einar bárðarson Hefur undirbúið margar uppákomur og nú er komið að honum sjálfum og er þá öllu til tjaldað.
Einar Bárðarson heldur upp á 35 ára afmæli sitt með bravúr á laugardagskvöld. Veislan verður í Vetrargarði Smáralindar og munu nokkrar helstu stjörnur hins íslenska tónlistarlífs troða upp til heiðurs umboðsmanni Íslands. stjörnuger Margar helstu poppstjörnur Íslands, skjólstæðingar og vinir Einars, munu heiðra afmælisbarnið með tónlist sinni. Á laugardagskvöld heldur umboðsmaður Íslands - Einar Bárðarson - upp á 35 ára afmæli sitt. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður öllu til tjaldað. Einar, sem hefur annast ýmsar uppákomur, ætlar greinilega ekki að láta sína eigin afmælisveislu vera afgangsstærð í þeim efnum. Páll Óskar - dj - Nasa - Eurovision störnuljós Veislan verður haldin í Vetrargarðinum þar sem X-Factor er með upptökuaðstöðu og þegar hafa fjölmargir gefið grænt ljós á að heiðra afmælisbarnið á þessum tímamótum. Þrjú hundruð manna gestalisti er fyrirliggjandi og áberandi í hópi þeirra sem fram koma eru vitanlega skjólstæðingar Einars í gegnum tíðina sem og samstarfsmenn hans í tengslum við sjónvarpsþættina Idol og X-Factor. Allan Jones / X-Factor Konungur rokksins, Bubbi, mun troða upp sem og Páll Óskar. Nylon flokkurinn mun að sjálfsögðu syngja til heiðurs guðföður sínum og það mun einnig Garðar Thor Cortes gera. Jógvan og Alan úr X-Factor munu hefja upp raust sína sem og stjarna síðasta árs: Magni. Garðar Thór Cortes Nylon platínuplata Enn er ekki búið að fylla lista þeirra listamanna sem fram munu koma í afmælisveislu Einars en X-Factor hljómsveitin mun spila, Kristjana Stefáns ætlar að syngja og Sumargleðin kemur fram. Bubbi Morthens með tónleika á Borginni Bubbi Morthens tekur lagið á Borginni með gítarinn og hljóðnemann að vopni Einar Bárðarson er ekki einn þeirra sem hefur í heiðri það að ekki skuli blanda saman ánægju og viðskiptum því samkvæmt heimildum blaðsins verða innkaupastjórar Woolworths, Tesco, Morrisons, Virgin, Sainsbury's og Play.com viðstaddir þessi miklu hátíðarhöld sem og samstarfsmenn Einars hjá Universal Music Oporation í London - þar sem Einar rekur sína umboðsskrifstofu. X Factor/ JÓGVAN HANSENSkipulagning gleðinnar er í höndum Saga film Events - en starfsemi kvikmyndafyrirtækisins hefur nú á seinni tímum færst æ meir yfir í að skipuleggja veislur hinna ríku - Saga Film sá einmitt um afmæli Ólafs Ólafssonar í Samskipum þegar Elton Johns mætti til að syngja til heiðurs afmælisbarninu. Og allir hnútar eru hnýttir, þannig er lagt upp úr öryggismálum og mun EA Securities gæta svæðisins. jakob@frettabladid.is
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira