Venus - fjórar stjörnur 16. mars 2007 06:00 HHHH Niðurstaða: Gott handrit, frábær leikur og eftirminnileg mynd.
Maurice og Ian eru leikarar sem mega muna fífil sinn fegurri. Áður fylktu áhorfendur liði í leikhúsið til að berja þá augum en nú er liðið á ævikvöldið og hlutverkin ekki upp á marga fiska; Maurice fær stöku sinnum að geispa golunni í kvikmyndum en Ian hefur enn vott af sjálfsvirðingu og tekur ekki í mál að leika lík. Fyrir utan hvorn annan eiga þeir félagsskap í fáum og lifa nánast sem hjón, graðga í sig pillum saman á morgnana, klippa táneglurnar hvor á öðrum og lesa minningargreinar um fallna kollega. Þegar ung frænka Ians flytur inn á frænda sinn hugsar hann sér gott til glóðarinnar og býst við að það verði stjanað við sig til æviloka. Frænkan reynist hins vegar forhertur vandræðaunglingur sem hefur annað í huga en að hjúkra gamalmennum. Kvennaflagarinn Maurice býðst þá til að taka stúlkuna upp á sína arma, lóðsa hana um London og kúltívera en lætur þess ógetið hvað hangir á spýtunni. Rithöfundurinn Hanif Kureishi á heiðurinn af handritinu sem er býsna sterkt; myndin er allt í senn bráðfyndin og harmræn. Samskipti Ians og Maurice eru til dæmis kostuleg en það er stutt í tregann og sagan sveiflast listilega þarna á milli. Það er mikið haust í sögunni og hrörnun leikur stórt hlutverk, stundum í kómísku ljósi, en heildarmyndin sem dregin er upp af hlutskipti eldri borgara er raunsæislega ófögur. Hér er þó líka hlýja því Venus er öðrum þræði þroskasaga og minnir óneitanlega á aðra slíka þótt ólíkar séu, það er Harold og Maude eftir Hal Asby. Ekkert hefur verið ýkt um frammistöðu Peters O’Toole í aðalhlutverkinu, hann er hreint út sagt frábær í hlutverki Maurice, manns sem hefur lifað lífinu á eigin forsendum og látið aðra sitja á hakanum, jafnvel konu sína og börn. Eftir því sem á líður verður honum æ betur ljóst að tilraun hans til að seilast eftir æskuþrótti Jessie er andvana fædd og á grafarbakkanum stendur hann frammi fyrir þeirri staðreynd að hann er einn og yfirgefinn og hefur ekki hugmynd um hver hann er. Leslie Phillips gefur O’Toole lítið eftir í hlutverki taugahrúgunnar Ians; Vanessa Redgrave er traust að vanda og nýliðinn Jodie Whittaker, sem leikur vandræðagemsann Jessie, lofar afar góðu. Bergsteinn Sigurðsson
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira