Handmáluð hauskúpa 15. mars 2007 06:00 Róbert og Mazdan sem hann skreytti. Brettið sem hann heldur á er snjóbretti með svokölluðum „mountain-board“-dekkjum.
Róbert Stefánsson handmálaði hauskúpu á Mözduna sína með airbrush-tækni. Verkið kallaði á nokkurn undirbúning. Í öðru auga kúpunnar er rautt díóðu-ljós sem bora þurfti fyrir. Airbrush-menningin náði aldrei að festa rætur hér á landi og eru skrautlega úðaðir bílar eða svokölluð málverk á hjólum fá. Þó hafa nokkrir beitt tækninni á bíla með ágætis árangri og er Róbert Stefánsson einn þeirra. Hann málaði hauskúpu á húdd Mözdu 323 bifreiðar sinnar og tribal-munstur á þakið. „Ég er mikill áhugamaður um list og er búinn að stúdera airbrushið svolítið. Mig langaði lengi að setja hauskúpu á húddið þannig að ég einfaldlega rissaði upp mynd á húddið og airbrushaði hana svo,“ segir Róbert. „Svo boraði ég gat í annað auga kúpunnar og kom fyrir rauðu ljósi.“Brettið er fínt í brekkurnar en of þungt á jafnsléttu. Málið var hins vegar ekki jafn einfalt og Róbert vill vera láta. Pússa þurfti upp húddið áður en myndin var máluð og lakka þurfti yfir það aftur til að verja myndina og litinn. „Við gerðum þetta inni í bílskúr því það þarf kyrrt loft til að þetta gangi. Við þurftum auðvitað að verja bílinn kringum húddið og það var smá vinna,“ segir Róbert. Róbert segist hafa mikinn áhuga á að vinna meira með airbrush á bílum. „Ég hef málað á einn annan bíl en það var ekki með airbrush,“ segir Róbert. „Ég er alveg óákveðinn hvort ég geri eitthvað meira við þetta en mig langar að prófa mig áfram og verða betri.“ Airbrush er ekki eina áhugamál Róberts. „Ég hef verið að leika mér á kraftbrettum og svo ákvað ég að gera smá tilraun. Ég tók dekk af mountain-board og setti undir snjóbretti sem ég átti fyrir. Það gefur brettinu skemmtilega eiginleika, það dúar miklu meira en mountain-boardið, og það er allt önnur tilfinning að standa á því,“ segir Róbert. „Það er fínt í brekkurnar en ég verð að viðurkenna að það er full þungt fyrir jafnsléttuna. Maður þyrfti helst að skella mótor undir það til að það gengi.“ tryggvi@frettabladid.is
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira