Kveikti í hárinu á sér á Loftleiðum 15. mars 2007 08:00 Ragnar Erling var að vonum sáttur við að komast inn í þáttinn og kvaðst spenntur fyrir nýju starfi sem sjónvarpstjarna. MYND/Anton „
Allir eru alveg rosalega ánægðir og þetta gekk mjög vel," segir Auðunn Blöndal en um helgina fóru fram áheyrnarprufur fyrir raunveruleikaþáttinn Leitin þar sem ærslabelgjatríóið Strákarnir reynir að finna arftaka sinn. Félagarnir voru mættir klukkan hálf tíu á sunnudagsmorgni og voru ekki komnir til síns heima fyrr en laust eftir miðnætti. Þeir Auðunn og Sverrir Þór voru síðan á flakki um borg og bí á mánudeginum til að leita uppi þá tíu sem komust áfram í gegnum niðurskurðinn og var þeim víðast hvar vel tekið þegar þá bar að garði. Þegar Fréttblaðið náði í skottið á þeim voru þeir á Essó-stöðinni á Ártúnshöfða þar sem Ragnari Erling Hermannssyni var tilkynnt valið. „Hann tók þessu fagnandi. Ragnar er samkynhneigður og stoltur af því. Mjög flippaður náungi og hlakkar mikið til að breyta aðeins um starfsumhverfi. Hætta að vinna á benínsstöðinni og verða sjónvarpsstjarna," útskýrir Auðunn. Sjónvarpsmaðurinn segir að þeir tíu sem sjónvarpsáhorfendur fá að berja augum þegar þátturinn fer í loftið 20.apríl séu æði skrautlegir. Þeir spanni í raun alla flóru mannlífsins og því geti áhorfendur heima í stofu búist við ótrúlegustu hlutum á skjánum. „Það gekk í það minnsta nógu mikið á í áheyrnarprufunum," segir Auðunn. „Og kannski var gott fyrir okkur að verða vitni að því að við vorum tiltölulega heilbrigðir miðað við þá geðsjúklinga sem þarna komu," bætir Auðunn við og segir að menn hafi kveikt í hárinu á sér og einn hafi tekið upp á því að drekka hland fyrir framan myndavélarnar. „Við gætum þó fyllsta velsæmis og skoðum hvað má birta og hvað ekki," segir Auðunn. Strákarnir þurftu að horfa upp á ýmislegt í áheyrnarprófunum á Hótel Loftleiðum. Sjónvarpsmaðurinn segir að þeir tíu sem sjónvarpsáhorfendur fá að berja augum þegar þátturinn fer í loftið 20.apríl séu æði skrautlegir. Þeir spanni í raun alla flóru mannlífsins og því geti áhorfendur heima í stofu búist við ótrúlegustu hlutum á skjánum. „Það gekk í það minnsta nógu mikið á í áheyrnarprufunum," segir Auðunn. „Og kannski var gott fyrir okkur að verða vitni að því að við vorum tiltölulega heilbrigðir miðað við þá geðsjúklinga sem þarna komu," bætir Auðunn við og segir að menn hafi kveikt í hárinu á sér og einn hafi tekið upp á því að drekka hland fyrir framan myndavélarnar. „Við gætum þó fyllsta velsæmis og skoðum hvað má birta og hvað ekki," segir Auðunn.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira