Níu ára ljósmyndari vekur athygli 14. mars 2007 08:45 Þau Arna og Arnar deila sameiginlegum áhuga á ljósmyndun en Arna er aðeins níu ára gömul. MYND/Arnar „
Mér finnst nú bara gaman að taka ljósmyndir,“ segir Arna Rós Hall Arnarsdóttir, níu ára gamall ljósmyndari sem vakið hefur mikla athygli á netinu. Þessi fyrirmyndarnemandi í Ingunnarskóla í Grafarholti stundar fimleika með Fjölni en milli þess sem hún bregður sér í spíkat og splitt smellir hún af myndum í gríð og erg. Stundum eru vinkonur hennar myndefni en oftast tekur hún sér fyrir hendur að fanga landslag Íslands. Og hefur hlotið mikið lof fyrir. Á síðu hennar á dpchallenge.com gefur að líta nokkur verk Örnu og má glöggt sjá að stúlkan er gædd miklum hæfileikum á þessu sviði. Arna hefur þegar hlotið ein verðlaun fyrir mynd af brúnni í Bláa lóninu og viðbrögð gesta láta ekki á sér standa þegar þeir uppgötva ungan aldur ljósmyndarans. Flestir af þeim sem taka þátt í þessum keppnum eru ýmist atvinnuljósmyndarar eða forfallnir áhugamenn um ljósmyndun sem margir hverjir hafa verið lengi að.Arna á ekki langt að sækja áhugann. Faðir hennar, Arnar Már Hall Guðmundsson, segist hafa fengið þessa bakteríu strax við fermingu. „Við gáfum Örnu myndavél í jólagjöf í fyrra og hún hefur eiginlega ekki stoppað síðan,“ útskýrir Arnar sem er að vonum stoltur af stúlkunni sinni. „Henni finnst þetta ótrúlega spennandi og er ótrúlega hæfileikarík,“ bætir pabbinn við. Hann segir Örnu hafa náð góðum tökum á svokallaðri þriðjungareglu sem er beitt við myndbyggingu og viðurkennir að Arna leggi stundum mikið til málanna þegar kemur að myndatöku enda þótt ekki sé farið að rífast yfir myndatökum af fjölskyldunni. „Ælti eggið sé ekki á köflum farið að kenna hænunni,“ segir Arnar og hlær. „Sumar myndir mínar eru betri en pabba,“ bætir Arna og þau feðgin skella upp úr. Verðlaunamynd Arna fékk silfur fyrir þessa ljósmynd af brúnni í Bláa lóninu á vefsíðunni dpchallenge.com Arna á ekki langt að sækja áhugann. Faðir hennar, Arnar Már Hall Guðmundsson, segist hafa fengið þessa bakteríu strax við fermingu. „Við gáfum Örnu myndavél í jólagjöf í fyrra og hún hefur eiginlega ekki stoppað síðan,“ útskýrir Arnar sem er að vonum stoltur af stúlkunni sinni. „Henni finnst þetta ótrúlega spennandi og er ótrúlega hæfileikarík,“ bætir pabbinn við. Hann segir Örnu hafa náð góðum tökum á svokallaðri þriðjungareglu sem er beitt við myndbyggingu og viðurkennir að Arna leggi stundum mikið til málanna þegar kemur að myndatöku enda þótt ekki sé farið að rífast yfir myndatökum af fjölskyldunni. „Ælti eggið sé ekki á köflum farið að kenna hænunni,“ segir Arnar og hlær. „Sumar myndir mínar eru betri en pabba,“ bætir Arna og þau feðgin skella upp úr.
Mest lesið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið