Leonardo á fleygiferð um heiminn 13. mars 2007 07:30 Finnur er sáttur við hvernig gekk á Jökulsárlóni þótt vissulega hefði hann viljað að DiCaprio dveldi lengur hér á landi.
Hún varð heldur stutt ferðin hjá bandaríska stórleikaranum Leonardo DiCaprio og kærustu hans, fyrirsætunni Bar Refaeli, hingað til Íslands í síðustu viku. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á laugardaginn lenti leikarinn í skjóli nætur aðfaranótt föstudags á Reykjavíkurflugvelli, svaf ferðaþreytuna úr sér og hélt strax um morguninn út á Jökulsárlón þar sem Annie Leibovitz tók myndir fyrir glanstímaritið Vanity Fair. „Upphaflega ætlaði hann að vera yfir helgina en vegna fjölskylduaðstæðna dreif hann sig af landi brott strax á föstudagskvöldinu," segir Finnur Jóhannsson, framleiðandi hjá True North, sem aðstoðaði tökuliðið frá Bandaríkjunum og sá um að allt væri eins og best yrði á kosið fyrir stórstjörnuna. „En tökurnar gengu alveg rosalega vel og alveg að óskum. Ef allt fer samkvæmt áætlun ættu myndirnar að birtast annað hvort í apríl- eða maíheftinu," bætir Finnur við og segir DiCaprio hafa verið dreng góðan og lausan við alla stjörnustæla.Leonardo DiCaprio.DiCaprio flaug ásamt Refaeli til Frankfurt, þar sem skötuhjúin höfðu stutta viðkomu, en þau voru síðan komin til Tel Aviv í Ísrael strax á mánudagsmorgun. Er þetta í fyrsta sinn sem DiCaprio hittir foreldra fyrirsætunnar en hann hafði áður verið í sambandi við brasilíska ofurmódelið Gisele Bündchen. Vafalítið hefur parinu verið hugsað til kyrrðarinnar við lónið fyrir austan því mikið fjölmiðlafár greip Ísraela þegar kvisaðist út að Titanic-stjarnan væri mætt til landsins. Fjöldi ljósmyndara beið þeirra á flugvellinum og þyrlur sveimuðu fyrir ofan hús foreldra fyrirsætunnar í von um að geta smellt heimkomuna á mynd. Refaeli er heimsfræg í heimalandi sínu og varð fyrsta ísraelska konan til að birtast á síðum baðfatablaðs Sports Illustrated.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira