Dorrit heiðursgestur í London 10. mars 2007 10:45 „
Þetta var frábær ferð og ég naut þeirra forréttinda að vera með stórum og skemmtilegum hópi kvenna,“ segir Margrét Sverrisdóttir stjórnmálamaður á heimasíðu sinni um eftirminnilega ferð til London í vikunni. Margrét var þar í hópi hundrað þekktra kvenna sem allar eiga það sameiginlegt að teljast áhrifakonur í atvinnulífinu. Konurnar voru á vegum Exedra sem er skilgreint sem vettvangur umræðna þessara áhrifakvenna sem koma meðal annars úr viðskiptum, stjórnmálum, menntamálum, fjölmiðlum og listum. Það var á þriðudagsmorgun sem lagt var upp í ferðina en einhverjar bættust við úti í London. Í hópnum voru meðal annarra sjónvarpskonurnar Eva María Jónsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Sigríður Arnardóttir, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrum rektor HR, og arftaki hennar Svafa Grönfeldt. Auk þess var lögfræðingurinn Kristrún Heimisdóttir með í för og athafnakonurnar Kristín Ólafsdóttir og Unnur Sigurðardóttir. Heiðursgesturinn var svo sjálf Dorrit Moussaieff forsetafrú. Hópurinn gisti á glæsihóteli í London eina nótt og stíf dagskrá var á meðan dvölinni stóð. Við komuna var haldið í hádegisverð þar sem framámenn úr íslensku útrásinni héldu fyrirlestra um starf fyrirtækja sinna á erlendri grundu. Þarna voru fulltrúar frá Bakkavör, Glitni, Kaupþing, Landsbankanum og FL Group, en það var sjálfur forstjórinn, Hannes Smárason, sem mætti á svæðið. Mjög góður rómur var gerður að máli Hannesar og því hvernig hann kom fyrir, enda talaði hann blaðalaust og var mjög alúðlegur. Hafði ein viðstaddra á orði að þarna hefði Hannes breytt áliti um 100 kvenna á sér á svipstundu. Sjálfur lét Hannes þau ummæli falla í ræðunni að þegar hann stæði fyrir framan hóp allra þessara kvenna skildi hann vel hvernig konum liði í viðskiptalífinu. Að vel heppnuðum hádegisverði og umræðum loknum var hópurinn í heild sinni fluttur í tískuverslunina Karen Millen. Versluninni var sérstaklega lokað fyrir íslensku konurnar og allar fengu þær 50% afslátt. Óhætt er að segja að það hafi mælst ágætlega fyrir. Klukkan 17 var móttaka hjá sendiherranum en kvöldverður var svo snæddur í Natural History Museum. Þar var sungið og dansað fram á nótt en meðal skemmtikrafta var Garðar Thór Cortes. Íslensku konurnar 100 sneru svo til síns heima seinnipartinn á miðvikudag.- hdm
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira