Lífið

Hassið átti ekki við Ingibjörgu Sólrúnu

Ingibjörg Sólrún reykti hass fyrir þrjátíu árum og það var ekki málið.
Ingibjörg Sólrún reykti hass fyrir þrjátíu árum og það var ekki málið.

Formenn stjórnmálaflokkana eru teknir í yfirheyrslu í nýju Mannlífi. Þar kemur meðal annars fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur prófað að reykja hass og þrír formannanna segjast ekki vita hvað BDSM er.

„Ég prófaði hass fyrir meira en 30 árum og ákvað að láta það alveg eiga sig. Það er mun skaðlegra en margir vilja vera láta,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir aðspurð hvort hún hafi prófað fíkniefni.

Þetta kemur fram í nýju Mannlífi en þar hafa menn nú stokkað upp. Nýir ritstjórar eru Þórarinn Þórarinsson og Reynir Traustason. Útgáfudögum verður fjölgað, tímaritið kemur fram á þriggja vikna fresti nú og verður fréttatengdara en áður hefur verið.

 

Guðjón arnar, STeingrímur og jón Þessir stjórnmálaforingjar hafa ekki grænan grun um hvað BDSM er.

Í þessu nýja tímariti eru stjórnmálaforingjarnir fimm spurðir spjörunum úr, allir fá þeir sömu fjölskrúðugu spurningarnar til að moða úr og eru svörin forvitnileg. Þannig kemur fram að Ingibjörg Sólrún er sú eina sem segist hafa prófað fíkniefni að frátöldu áfengi og tóbaki. Hún fellur ekki í þá sömu gryfju og Bill Clinton sem svaraði sömu spurningu á þá leið að hann hefði prófað að reykja „jónu“ en ekki ofan í sig – og var mikið skopast með.

 

Annað sem má heita sérlega forvitnilegt er að Guðjón Arnar Kristjánsson, foringi Frjálslyndra, veit ekki hvað BDSM er. Og því síður Jón Sigurðsson, foringi framsóknarmanna, sem tekur vel utan um svar sitt: „Ég hef alls enga hugmynd um það. Er þetta ensk skammstöfun eða íslensk?“ Og Steingrímur J. Sigfússon er einnig úti á túni:

 

„Hef ekki hugmynd um það og veit ekki til þess að sú fáfræði hafi komið að sök.“ Ingibjörg Sólrún svarar hins vegar: „Sérkennileg kynlífshegðun sem byggist á valdi og undirlægjuhætti.“ Sem hlýtur að teljast nálægt lagi. Geir H. Haarde er á svipuðu róli og Ingibjörg. En heita má sérkennilegt, í ljósi gríðarlegs fréttaflutnings af málefnum Byrgisins, þar sem einmitt BDSM-kynlíf kom mjög við sögu, að þeir Jón, Steingrímur og Guðjón Arnar viti ekki hvað um ræðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.