Britney að brotna í meðferðinni 8. mars 2007 10:15 Fjölskylda hennar hefur miklar áhyggjur af líðan söngkonunnar og hræðist að hún muni ekki halda meðferðina út.
Veröld Britney Spears virðist að hruni komin. Tilraun poppprinsessunnar til að koma röð og reglu á líf sitt á meðferðarheimilinu Promises í Malibu virðist vera að fara út um þúfur og fjölskylda hennar hefur miklar áhyggjur af líðan hennar. Þetta upplýsir bandaríska glanstímaritið Us Weekly og hefur eftir nánum vinum Spears-fjölskyldunnar að hún óttist að Britney muni ekki halda út meðferðartímann. Að sögn heimildarmanna blaðsins virðist hún strax vera orðin nokkuð óróleg á meðferðarheimilinu og greip fjölskyldan meðal annars til þess bragðs að fá frænda hennar, Alli, til að gista hjá henni á föstudaginn. Hann heimsótti hana síðan bæði laugardag og sunnudag. Hin 25 ára gamla Spears hefur ekki farið út af meðferðarheimilinu síðan á fimmtudag þegar hún kom við hjá vinkonu sinni og náði í föt sem hún hafði keypt á netinu. Breska götublaðið The Sun greindi frá því í gær að Britney hefði eytt tæplega tvö hundruð þúsund krónum í föt á netinu og að aðstoðarmenn hennar hefðu sótt þau í verslun. Spears ætti því að geta klætt sig upp í meðferðinni. Britney Spears skráði sig í meðferð á Promises-heimilinu í lok síðasta mánaðar eftir að hafa látið sig hverfa í tvígang af meðferðarheimilum. Fjölmiðlar beggja vegna Atlantshafsins hafa fylgst grannt með Spears og hegðan hennar og um helgina greindi News of the World frá hótunum söngkonunnar um að svipta sig lífi. Þá hafa sögusagnir verið á kreiki um að hún og fyrrverandi eiginmaðurinn Kevin Federline hafi í hyggju að endurnýja brúðkaupsheitin eftir frekar harkalegan skilnað.
Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira