Innlent

Trúverðugleiki borgarstjóra að miklu leyti horfinn

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur ólíklegt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sitji áfram á næsta kjörtímabili og segir hann eiga mikið verk fyrir höndum við að vinna aftur traust borgarbúa.

Stefanía var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2. Hún segir ljóst að meirihlutinn í borgarstjórn sé í miklum vanda og fróðlegt verði að sjá hvað kom út úr fundi hans sem haldinn var í hádeginu. Það liggi ekki fyrir að Björn Ingi Hrafnsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, vilji fara þá leið sem borgarfulltrúarnir kynntu á mánudag og snýst um að selja hlut borgarinnar í Reykjavik Energy Invest.

Þá telur Stefanía að borgarstjóri hafi sýnt Birni Inga ákveðna óvirðingu með því að gefa sér að salan farin fram. Björn Ingi sé áttundi maðurinn í meirihluta borgarstjórnar og hann hafi lýst því yfir að hann hafi trú á verkefninu og sé eflaust mjög tregur til þess að fallast á söluna.

Stefanía bendir á að ekki sé ljóst hvaða viðhorf Sjálfstæðisflokkurinn hafi til þátttöku opinberra fyrirtækja í útrás með einkafyrirtækjum. „Við sjáum til dæmis að á meðan þetta er mjög umdeilt með samvinnu Orkuveitunnar og REI og Geysir Green Energy þá eru Landsvirkjun og Landsbankinn að fara saman í útrás af svipuðum toga," segir Stefanía.

Ekki líklegt að Vilhjálmur sitji áfram á næsta kjörtímabili

Aðspurð hvort hún telji að Vilhjálmur geti setið á áfram sem borgarstjóri segir Stefanía að hann sé í mjög alvarlegri stöðu. „Trúverðugleiki hans sem leiðtogi í borginni er núna mjög í hættu ef þá ekki að miklu leyti horfinn. Það er erfitt að segja afdráttarlaust að tímar hans sem borgarstjóra séu taldir en ég tel þó ljóst að það sé ekki líklegt að hann sitji áfram á næsta kjörtímabili. Hann hefur greinilega misst tengslin við borgarstjórnarflokkinn sinn og fyrir almennan áhorfanda sem fylgist með þessu virkar það eins og það sé ekki lengur neinn borgarstjóri í Reykjavík," segir Stefanía. Borgarstjóri þurfi að leggja í mjög mikla vinnu til að endurheimta traust borgarbúa og borgarfulltrúa.

Stefanía telur enn fremur að dagar Guðmundar Þóroddssonar sem forstjóra Orkuveitunnar séu brátt taldir. „Það er svo mikilvægt að halda trúverðugleika í opinberu fyrirtæki og ekki síst á opinberum vettvangi, það er að segja að borgarfulltrúar og kjörnir leiðtogar verða líka að rækta þennan trúverðugleika og halda honum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×