Trúverðugleiki borgarstjóra að miklu leyti horfinn 10. október 2007 14:03
Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur ólíklegt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sitji áfram á næsta kjörtímabili og segir hann eiga mikið verk fyrir höndum við að vinna aftur traust borgarbúa. Stefanía var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2. Hún segir ljóst að meirihlutinn í borgarstjórn sé í miklum vanda og fróðlegt verði að sjá hvað kom út úr fundi hans sem haldinn var í hádeginu. Það liggi ekki fyrir að Björn Ingi Hrafnsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, vilji fara þá leið sem borgarfulltrúarnir kynntu á mánudag og snýst um að selja hlut borgarinnar í Reykjavik Energy Invest. Þá telur Stefanía að borgarstjóri hafi sýnt Birni Inga ákveðna óvirðingu með því að gefa sér að salan farin fram. Björn Ingi sé áttundi maðurinn í meirihluta borgarstjórnar og hann hafi lýst því yfir að hann hafi trú á verkefninu og sé eflaust mjög tregur til þess að fallast á söluna. Stefanía bendir á að ekki sé ljóst hvaða viðhorf Sjálfstæðisflokkurinn hafi til þátttöku opinberra fyrirtækja í útrás með einkafyrirtækjum. „Við sjáum til dæmis að á meðan þetta er mjög umdeilt með samvinnu Orkuveitunnar og REI og Geysir Green Energy þá eru Landsvirkjun og Landsbankinn að fara saman í útrás af svipuðum toga," segir Stefanía. Ekki líklegt að Vilhjálmur sitji áfram á næsta kjörtímabili Aðspurð hvort hún telji að Vilhjálmur geti setið á áfram sem borgarstjóri segir Stefanía að hann sé í mjög alvarlegri stöðu. „Trúverðugleiki hans sem leiðtogi í borginni er núna mjög í hættu ef þá ekki að miklu leyti horfinn. Það er erfitt að segja afdráttarlaust að tímar hans sem borgarstjóra séu taldir en ég tel þó ljóst að það sé ekki líklegt að hann sitji áfram á næsta kjörtímabili. Hann hefur greinilega misst tengslin við borgarstjórnarflokkinn sinn og fyrir almennan áhorfanda sem fylgist með þessu virkar það eins og það sé ekki lengur neinn borgarstjóri í Reykjavík," segir Stefanía. Borgarstjóri þurfi að leggja í mjög mikla vinnu til að endurheimta traust borgarbúa og borgarfulltrúa. Stefanía telur enn fremur að dagar Guðmundar Þóroddssonar sem forstjóra Orkuveitunnar séu brátt taldir. „Það er svo mikilvægt að halda trúverðugleika í opinberu fyrirtæki og ekki síst á opinberum vettvangi, það er að segja að borgarfulltrúar og kjörnir leiðtogar verða líka að rækta þennan trúverðugleika og halda honum."
Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin Erlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira