Trommari lýsir mótórhjólakeppni 3. mars 2007 11:30 Björgvin Ploder ekur um á sama mótorhjóli og var notað í frægu myndbandi Sniglabandsins við lagið sívinsæla Jólahjól. MYND/GVA
Björgvin Ploder, trommari Sniglabandsins, lýsir mótorhjólaþættinum Motogp sem hóf göngu sína á Skjá einum um síðustu helgi. Það eru hæg heimatökin hjá Björgvini því hann starfar sem hljóðmaður á Skjá einum og var hann meira en lítið æstur þegar hann frétti af því að stöðin hefði fest kaup á uppáhaldsþættinum sínum. „Ég er búinn að fylgjast með þessu í tólf til fimmtán ár á Eurosport,“ segir Björgvin. „Ég fór beint í mína yfirmenn og sagðist ætla að lýsa þessu.“ Áttu yfirmennirnir erfitt að standast þessa ákveðni Björgvins og réðu hann á staðnum. „Þessi keppni er í sama flokki og Formúlan er fyrir bílana. Þetta er samt ekki keppni í því hver er fljótastur að skipta um dekk eða setja bensín á, heldur keppni í því hver er fljótastur að keyra. Þeir stoppa ekkert og það er ofboðslega skemmtilegt að fylgjast með þessu,“ segir hann og bætir því við að hraðskreiðustu hjólin fari upp í 300 km hraða. Björgvin er, eins og gefur að skilja, forfallinn mótorhjólaáhugamaður og á hvorki fleiri né færri en fjögur hjól. Eitt þeirra er "67 módel en hin þrjú eru "80 módel. Átján ár eru nú liðin síðan hann fór með félögum sínum í Sniglabandinu í eftirminnilega mótorhjólaferð til Sovétríkjanna þáverandi, þar sem þeir feyktust um á fákum sínum og héldu tíu tónleika. „Við vorum í mánuð í Sovét og þvældumst um öll Eystrasaltsríkin, fórum til Moskvu, Hvíta Rússlands og síðan til Leníngrad, sem núna heitir St. Pétursborg. Ég hef aldrei verið jafnfrægur og þá en það vissi bara enginn af því.“
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira