Lífið

Angelina grenntist af sorg

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Angelina Jolie segir að þyngdartap sitt undanfarna mánuði sé vegna dauða móður hennar, sem lést úr krabbameini í janúar.

Miklar vangaveltur hafa verið í slúðurpressunni um heilsufar leikkonunnar en kílóin hafa fokið af henni og ekki allir á því að hún hafi mátt við því.

,,Ég hef alltaf verið grönn, og í ár missti ég mömmu mína. Ég á fjögur börn, og var að hætta með barn á brjósti - það hefur verið erfitt að koma matarræðinu í samt lag" ,,Í staðinn fyrir að halda að ég sé að ganga í gegnum eitthvað andlega, gerir fólk ráð fyrir því að ég sé bara að reyna að passa í þröngar gallabuxur." sagði leikkonan í viðtali við Evening Standard dagblaðið.

Jolie veitti viðtalið til að kynna nýja mynd sína, ,,A Mighty Heart" um blaðamanninn Daniel Pearl sem var afhöfðaður af hryðjuverkamönnum í Pakistan. Í myndinni leikur hún eiginkonu Pearl, Marianne, sem var ófrísk þegar hann var myrtur.

Leikkonan er fjögurra barna móðir, þó hún hafi að vísu bara gengið með eitt þeirra. Hún viðurkenndi að hafa þurft að biðja leikstjóra myndarinnar um ráð þegar kom að því að leika náttúrulega fæðingu, en dóttir hennar var tekin með keisaraskurði.

,,Það var mjög fyndið að hópur karlmanna væri að útskýra fyrir mér hvernig ég ætti að öskra úr mér lungun" ,,Við öskruðum öll fram og til baka á hvort annað - það var stórfurðulegt"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.