Lífið

Skandall að aflýsa ráðstefnunni

Sigurður Valdimar hafði fengið öll gögn en slapp við að greiða mótsgjaldið sem var rúmar hundrað þúsund krónur.
Sigurður Valdimar hafði fengið öll gögn en slapp við að greiða mótsgjaldið sem var rúmar hundrað þúsund krónur. MYND/GVA

„Greiðslan var ekki kominn í gegn og ég varð því ekki fyrir neinu fjárhagslegu tjóni vegna þessa,“ segir Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíðunnar klam.is. Sigurður hugðist sækja Snowgathering-ráðstefnuna sem halda átti í Reykjavík í mars en var aflýst fyrir helgi eftir að ráðstefnugestum var meinað að gista á Hótel Sögu.

Á ráðstefnunni hugðust klámframleiðendur víða að úr Evrópu hittast og skemmta sér saman. Aðgangseyririnn var í kringum hundrað þúsund krónur og var Sigurður kominn með öll gögn í hendurnar. Hann hafði ekki gert upp við sig til hvaða ráðstafana yrði gripið vegna þessarar ákvarðanar Radison hótelsins og þrýstings frá stjórnvöldum þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Ætli ég verði ekki bara að mótmæla þessu öllu og vera með sem mest læti,“ segir Sigurður. „Þetta ætti að skýrast á næstu dögum.“

Sigurður segist hafa fengið þó nokkra pósta frá ráðstefnugestum og eru þeir allir á sama máli, þeir skilji lítið sem ekkert í þessum viðbrögðum á landinu. „Ég reikna með því að heyra frá öðrum en þetta er náttúrlega skandall, í einu orði sagt,“ segir Sigurður sem er þó handviss um að ráðstefna af þessu tagi verði haldin hér á landi, fyrr eða síðar. „Kannski þegar ekki er kosningaár,“ bætir hann við. „Sama hvað þeir segja núna þá geta þeir ekki haldið svona hlutum til streitu,“ segir Sigurður.

Eftir að Fréttablaðið birti frétt um þátttöku Sigurðar og tilveru vefsíðunnar klam.is hefði mátt ætla að hann hefði fengið einhverja pósta eða símhringingar frá andstæðingum kláms. „Nei, enginn hefur hringt í mig. Þessu fólki virðist vera alveg sama um innlenda klámhunda en hafa megnustu óbeit á þeim erlendu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.