Stór áfangi að stíga á stóra sviðið 25. febrúar 2007 08:45
Lára Sveinsdóttir stígur á stóra svið Þjóðleikhússins í fyrsta skipti í kvöld þegar hún bregður sér í hlutverk Heiðu í Sitji Guðs englar. Oft er talað um stóra stund í lífi leikara þegar þeir afreka þetta og Lára segist vissulega vera með hnút í maganum. Ekki þó vegna þess að þetta sé stóra sviðið heldur vegna þess að það snúist. Hún segist því meira finna fyrir fiðringi heldur en einhverri hræðslu. „Ég hef aldrei leikið á svona snúningssviði og fæ bara eitt rennsli áður en stóra stundin rennur upp," segir Lára en hún tekur við hlutverkinu af Brynhildi Guðjónsdóttur sem farin er til London og tekur þátt í uppfærslunni á Pétri Gaut í Barbican Center í leikstjórn Baltasars Kormáks. Lára hlakkar þó fyrst og fremst til kvöldsins enda er verkið skemmtilegt og mikið af skemmtilegu fólki í kringum hana. „Þetta er náttúrlega Þjóðleikhúsið og því stór stund að stíga á þetta svið en þetta verður allt í lagi," segir Lára. „Þetta er eitthvað sem alla leikara dreymir um og eitthvað sem allir verða að prófa," bætir hún við. Lára hefur hingað til aðallega leikið í barnaleikritum en kom einnig fyrir í litlu hlutverki í kvikmyndinni Börn auk þess sem hún hefur skemmt sjónvarpsáhorfendum Stöðvar 2 í gamanþáttunum Stelpunum. Og nóg er af verkefnum í nánustu framtíð og ber þar hæst frumraun Björns Hlyns Haraldssonar í leikstjórastólnum í sumar. „En meira get ég ekki sagt um það, þetta verður allt að koma í ljós."
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira