Lífið

Túlípanar, ljóð og rauðvín á Alþingi

Steingrímur fékk harðfisk og hraunmola frá sínum vini.
Steingrímur fékk harðfisk og hraunmola frá sínum vini.

Leynivinavika hefur staðið yfir á Alþingi undanfarna viku og hafa hinir ýmsu alþingismenn tekið þátt í henni. „Ég fór að fá sendingar frá ágætum leynivini.

Hann sendi mér harðfiskpoka og myndarlegan hraunmola með hlýlegri orðsendingu," segir Steingrímur J. Sigfússon um þátttöku sína í leiknum. Hafði hann enga hugmynd um hver sendi honum þessar mætu gjafir. „Hann var kannski að höfða til minna tilfinninga sem jarðfræðings og ég verð að hrósa honum fyrir góðan smekk." Steingrími var úthlutað leynivini og var það Valgerður Sverrisdóttir. Var hún aftur á móti farin til Afríku og lét hann sér því nægja að hugsa hlýlega til hennar.

 

Ásta Möller sendi Ágústi Ólafi sérvalið úrvalsrauðvín og te.

Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi, Samfés, sendu tölvupóst á alla þingmenn og var þeim útvegaður einn leynivinur til að gleðja með einhverjum hætti og tóku flestir þeirra vel í hugmyndina. „Ég fóstraði Ágúst Ólaf og það var ekkert leiðinlegt, enda ljúfur strákur þar á ferð," segir Ásta Möller. „Ég sendi honum rauðvínsflösku í byrjun vikunnar, sérvalda úrvalsflösku. Síðan keypti ég te í poka með tesíu svo hann geti róað sig líka. Síðan var bankað upp á hjá mér og þá fékk ég heilan túlípanavönd. Á öskudag var mér síðan afhentur stór öskupoki með bognum títuprjóni með grjónum." Hafði hún enga hugmynd um hver átti hana sem leynivin.

 

Guðrún Ögmundsdóttir fékk uppskrift af karríýsu frá Hjálmari Árnasyni.

Guðjón Hjörleifsson var leynivinur Guðrúnar Ögmundsdóttur. „Ég gaf mínum leynivini ljóðabók Elísabetu Jökulsdóttur um konuna í húsinu," segir Guðrún. „Svo sendi ég honum mikið af fallegum myndum og gaf honum alls konar orðfæri, sem hann getur notað við ræðuhöld. Ég er sjálf búin að fá uppskrift af karríýsu og ljóð og líka bók um hvernig fer fyrir manni þegar maður verður miðaldra," segir Guðrún, en maðurinn á bak við þær sendingar var Hjálmar Árnason.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.