Anna Nicole Smith vildi deyja 12. febrúar 2007 10:30 Anna Nicole Smith var lífsglöð og hress þegar sá gállinn var á henni. Undir það síðasta var þó allur lífsneisti farinn úr henni. MYND/Getty
Skömmu fyrir andlát sitt sagði fyrirsætan Anna Nicole Smith vinkonu sinni að lífið væri að buga sig. „Ég get ekki haldið áfram, lífið er að drepa mig,“ sagði Anna grátandi í símtali. Hún var undir áhrifum fjölda lyfja en mikil lyfjaneysla hafði sett sitt mark á hana. Anna hringdi í vinkonu sína skömmu eftir að hún kom á hótelið í Flórída þar sem hún lést 48 klukkustundum síðar. „Anna var í hræðilegu ástandi. Líf hennar var reyndar aldrei einfalt en þegar hún hringdi þarna var eitthvað öðruvísi en venjulega. Ég var virkilega hrædd um hana. Hún hafði verið með sjálfseyðingarhvöt í mörg ár og tekið ógrynni af lyfjum. Þarna var augljóst að hún vildi deyja,“ sagði vinkona hennar við News of the World. Anna Nicole hafði áhyggjur af mörgu undir það síðasta í lífi sínu. Hún syrgði enn tvítugan son sinn sem lést í september eftir ofneyslu eiturlyfja. Það gerðist aðeins þremur dögum eftir að Anna fæddi dóttur sína sem nú er deilt um faðernið á. Þrír hafa gefið sig fram sem líklegir feður en möguleiki er á að Anna hafi notað fryst sæði úr fyrrverandi eiginmanni sínum, auðmanninum J. Howard Marshall, til að styrkja kröfu sína um að erfa auðævi hans. Þá átti Anna yfir höfði sér lögsókn vegna ásakana um að megrunarpillur sem hún auglýsti gerðu ekkert gagn. Dánarorsök Önnu liggur ekki fyrir. Ekki mun hafa verið um of stóran skammt lyfja að ræða en líklegt er talið að aukaverkanir af lyfjaneyslu hennar hafi dregið hana til dauða. „Anna tók lyf eins og annað fólk drekkur vatn. Ég veit ekki hvort hún framdi sjálfsmorð en hún vildi deyja. Kannski sagði líkami hennar að nú væri nóg komið,“ sagði vinkona hennar. Anna reyndi að fremja sjálfsmorð í fyrra eftir að sonur hennar dó.
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira