Lífið

Eyþór tekur glæsieign í Þingholtsstræti í gegn

Eyþór og Dagmar eiga bóndabæinn Hreiðuborg og nýverið bættist við stór eign í Þingholtsstræti.
Eyþór og Dagmar eiga bóndabæinn Hreiðuborg og nýverið bættist við stór eign í Þingholtsstræti. MYND/Hörður
„Við sáum þarna einfaldlega kærkomið tækifæri og vildum taka þátt í því endurreisnarstarfi sem hefur verið í gangi í Þingholtunum," segir bæjarfulltrúinn Eyþór Arnalds en hann og eiginkonan Dagmar Una Ólafsdóttir keyptu í sumar hundrað ára gamalt timburhús við Þingholtsstræti 21. Hjónin hafa sótt um leyfi hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar fyrir því sem Eyþór segir vera „gagngerar endurbætur á húsinu í anda upphaflegrar hönnunar þess" en eignin mun stækka töluvert og verður 420 fermetrar þegar þeim framkvæmdum er lokið.

„Sumir kaupa sér sumarbústað í sveitinni en við snúum dæminu við því þetta verður eiginlega okkar „bústaður" í borginni," bætir Eyþór við sem alla jafnan býr í sveitasælunni í Árborg.

Að sögn Eyþórs var eignin í hálfgerðri niðurníslu þegar þau keyptu það en hjónin ætla að bretta upp ermarnar við að koma því aftur í sitt upprunalega horf.

„Við ætlum ekki að ráðast í einhverja nútímavæðingu og niðurrifsstarfsemi," segir Eyþór. Hjónin hafa fengið arkitektinn Pál Bjarnason til liðs við sig en hann á meðal annars heiðurinn af endurreisn Iðnó.

„Að rífa ný hús virðist vera í tísku og kemur sennilega betur út á Excel-skjali," segir Eyþór.

Þingholtsstræti 21 er tæplega hundrað ára gamalt hús og hyggjast hjónakornin gera á því þónokkrar endurbætur.MYND/Rósa
Bæjarfulltrúinn í Árborg vildi ekki gefa upp hversu mikið hann hefði borgað fyrir eignina en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er fermetraverðið í Þingholtunum með því hæsta í höfuðborginni og getur farið uppí allt að þrjú hundruð þúsund. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er venjan að óskað sé eftir tilboðum í eignir á þessu svæði en fastlega má gera ráð fyrir því að verðið hafi ekki verið undir 100 milljónum. Með fyrirhugaðri stækkun verður það hins vegar ríflega 120 milljóna króna virði.

Eyþór segist vera lítið smeykur við meintan miðbæjarskríl í 101 enda séu engir veitingastaðir eða ölstofur í næsta nágrenni. „Og svo er fólk náttúrlega svo misjafnt. Við erum til að mynda ekki mikið á ferli eftir kvöldmat," segir Eyþór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.