Erlent

Vopnasölusáttmáli Sameinuðu þjóðanna í burðarliðnum

Vopnasölusáttmálinn á að koma í veg fyrir að byssur fari þangað sem þær eiga ekki að fara.
Vopnasölusáttmálinn á að koma í veg fyrir að byssur fari þangað sem þær eiga ekki að fara.

Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna samþykkti nær samhljóða í gær að byrja að vinna að alþjóðlegum vopnasölusáttmála. Með sáttmálanum er stefnt að því að laga galla í núverandi alþjóðalöggjöf sem valda því að skotvopn eru seld til átakasvæða þrátt fyrir vopnasölubann og viðskiptaþvinganir.

Með honum væri einnig hægt að taka fyrir sölu vopna til vanþróaðra landa sem eyða fúlgum í vopnabúr sitt á kostnað velferðar landsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×