Bjórinnflytjendur reyna að lokka til sín 15 og 16 ára skólabörn 23. janúar 2006 19:49
Unglingadrykkja er vaxandi vandamál, sem tekur á sig ýmsar myndir. Meðal annars eru talsverð brögð að því að reynt sé að markaðssetja áfengi í skólum. Þar eru á ferðinni bæði innflytjendur og veitingastaðir sem setja sig í samband við einhverja nemendur, gjarnan í forystu nemendafélaga, og geri þeim tilboð. Svo eru haldin bjórkvöld eða einhverskonar teiti sem ganga gjarnan undir dulnefnum eins og skák- eða tölvukvöld. Í sumum tilfellum segja nemendur jafnvel foreldrum sínum að þau séu að fara á bjórkvöld á vegum skólans. Sigríður Hulda Jónsdóttir, verkefnisstjóri í forvörnum leggur áherslu á að bjórkvöld séu aldrei á vegum neins skóla. Þvert á móti berjast skólayfirvöld eftir mætti gegn þessum samkomum. Meðal annars hafa skólar bannað að auglýsa innan sinna veggna hverskonar samkomur sem ekki eru í þeirra húsnæði. Gallinn er sá að unglingarnir eiga auðvelt með að koma auglýsingum til skila eftir öðrum boðleiðum, eins og til dæmis SMS skilaboðum og tölvupósti. Aðkoma veitingastaða að svona uppákomum er auðvitað bæði siðlaus og ólögleg. Sigríður segir að forvarnarfulltrúar hafi fundað með lögreglunni vegna þessa, en viðurlög séu ekki ströng. Í fyrsta skipti fái veitingastaðir aðvörun, í annað skipti sé þeim lokað í eitt kvöld, og næst sé kannski búið að skipta um kennitölu og nafn, og leikurinn hafinn aftur. Sigríður ráðleggur foreldrum að fylgjast grannt með börnum sínum, og fullvissa sig um það þegar þau segist vera á leið á skólasamkomu að sú samkoma sé í raun á vegum skólans.
Fréttir Innlent Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Sjá meira