Lífið

McCartney fagnar 64 ára afmælinu

paul mccartney Bítillinn fyrrverandi heldur upp á 64 ára afmælið sitt á sunnudaginn.
paul mccartney Bítillinn fyrrverandi heldur upp á 64 ára afmælið sitt á sunnudaginn. MYND/gettyimages

Bítillinn fyrrverandi, Sir Paul McCartney, heldur upp á 64 ára afmælið sitt á sunnudaginn. Svo skemmtilega vill til að McCartney er höfundur Bítlalagsins vinsæla When I"m Sixty-Four sem kom út 1. júní 1967 á plötunni Sgt. Pepper"s Lonely Hearts Club Band.

Af fjórum meðlimum Bítlanna eru aðeins þeir Paul McCartney og Ringo Starr, sem verður 66 ára þann 7. júlí, á lífi. John Lennon, sem var skotinn til bana 1980, var jafnaldri Starr og George Harrison, sem lést fyrir fimm árum, hefði orðið 63 ára í febrúar síðastliðnum.

Í sumarfríi á Wight-eyjuTextinn við When I"m 64 gerist í framtíðinni þegar McCartney fer í sumarfrí á Wight-eyju með konu sinni og barnabörnunum Vera, Chuck og Dave. Á þessum tíma átti hann í ástarsambandi við bresku leikkonuna Jane Asher. Nú er hann aftur á móti orðinn einn á báti eftir skilnað sinn við fyrirsætuna fyrrverandi Heather Mills. Erfiður skilnaðurMikið hefur verið ritað um skilnaðinn og hefur Mills verið borin þungum sökum í breskum fjölmiðlum. Hefur hún verið sökuð um að hafa stundað vændi á sínum yngri árum en sjálf hefur hún neitað því staðfastlega. Einnig telja margir að hún hafi einungis gifst McCartney til fjár vegna þess að enginn hjúskaparsáttmáli hafi verið undirritaður áður en þau gengu upp að altarinu. Gæti svo farið að Mills fái marga milljarða króna í vasann þegar skilnaðurinn gengur í gegn, enda McCartney einn af ríkustu mönnum Bretlandseyja. Sungið í afmælisveislunni?McCartney er ekki á tónleikaferð um þessar mundir en á síðasta ári fór hann í umfangsmikla ferð um Bandaríkin sem heppnaðist afar vel. Þá lét hann hafa það eftir sér að hann gæti vel hugsað sér að syngja lagið í fyrsta sinn á tónleikum á 64 ára afmælinu. Því miður mun hann ekki fá tækifæri til þess, nema það verði í afmælisveislunni sjálfri.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.