Artside fær fjórar stjörnur 16. júní 2006 08:00 Tónlist Artside
Íslensk/danska hljómsveitin Artside fékk nýverið fjórar stjörnur í danska blaðinu Gaffa fyrir þriggja laga demó-skífu sína. Demóið var valið það besta í júnímánuði og af því tilefni spilaði sveitin á tónleikum í Kaupmannahöfn síðastliðinn föstudag við góðar undirtektir. Voru þetta aðeins aðrir tónleikarnir í sögu sveitarinnar, en hún hefurverið starfandi í núverandi mynd í þrjá mánuði. Að sögn gítarleikarans og aðallagahöfundar Artside, Jóhanns, á sveitin nóg af efni fyrir heila plötu. Við ætlum að komast inn í stúdíó sem fyrst að taka upp plötu og spila síðan sem mest, segir hann. Við erum með tíu laga tónleikaprógram en æfum oftast nýtt lag á hverri æfingu. Bætir hann því við að tónlistin sé undir sterkum áhrifum frá bresku rokki og róli. Tveir af stofnmeðlimum Artside, þeir Jóhann og söngvarinn Kristján, voru áður í hljómsveitinni Oblivius heima á Íslandi, sem starfaði í tæp tvö ár. Fyrir tveimur árum fóru þeir í Lýðháskólann í Danmörku og hafa ílengst þar síðan. Auk þeirra eru í nýju sveitinni trommarinn Raggi og danski bassaleikarinn Andy. Jóhann býst við frekara tónleikahaldi á næstunni. Hún er búin að vekja mikla athygli þessi grein í Gaffa og það er búið að bóka tónleika út um alla Danmörku, segir hann og sér fram á bjarta tíma með Artside. Nánari upplýsingar um sveitina má finna á artside.dk.
Menning Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Sjá meira