Stefna að því að einkafyrirtæki reki Keflavíkurflugvöll 6. apríl 2006 17:04 Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, í ræðustól á Alþingi. MYND/Valgarður Gíslason
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, telur rétt að stefna að því að einkafyrirtæki annist rekstur Keflavíkurflugvallar og félagið verði síðan einkavætt í framhaldinu. Hann telur ekki þörf á rannsókn hér á landi vegna uppljóstrana í skýrslu Amnesty International um fangaflug Bandaríkjamanna. Utanríkisráðherra flutti í dag Alþingi skýrslu um utanríkismál. Þar fór hann yfir stöðu mála í heiminum og stefnu íslenskra stjórnvalda í hinum ýmsu alþjóðamálum. Hann fór þar meðal annars yfir stöðu mála í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn. Í ræðu sinni vék ráðherra einnig að rekstri Keflavíkurflugvallar og sagði einsýnt að Íslendingar tekið við honum. Hann sagðist telja að stefna ætti að því að einkafyrirtæki annist rekstur vallarins eins og tíðkist annars staðar. Þá yrði stofnað hlutafélag í eigu ríkisins um rekstur flugvallarins, en ekki skuli látið staðar numið þar heldur yrði félagið einkavætt í framhaldinu. Innlendum og erlendum fjárfestum yrði síðan boðinn þessi vænlegi fjárfestingarkostur. Ráðherra bætti því við að ekkert væri þó ákveðið í þessum efnum. Össur Skarphéðinsson gerði Íraksstríðið að umræðuefni og spurði ráðherra hvort hann teldi ákvörðunina um stuðning við innrásina í Írak rétta í ljósi þess sem síðan hefði komið fram. Sagði ráðherra að hann teldi þá ákvörðun, sem tekin var á þeim tíma, hafa verið rétta. Össur spurði hvort ný skýrsla Amnesty International um fangaflug Bandaríkjamanna gæfi tilefni til rannsóknar. Ráðherra svaraði því til að ef slík rannsókn yrði gerð heyrði hún undir dómsmálaráðherra. Hins vegar teldi hann að skýrslan gæfi ekki tilefni til slíkrar rannsóknar. Vikið væri að Íslandi á einum stað í skýrslunni varðandi flugvél sem hefði lent hér á landi og ekki vitað hvort hún hefði verið að flytja fanga.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Sjá meira