Dómur Hæstiréttar vegna SPH á næstu grösum 2. mars 2006 18:53
Fyrirtæki tengd Baugi fjármögnuðu að miklu leyti kaupin á stofnfé í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem nú eru til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Hæstiréttur sker á allra næstu dögum úr um hvort Fjármálaeftirlitinu hafi, í tengslum við rannsóknina, verið heimilt að rannsaka bankareikninga lögmannsstofu að eigendum hennar forspurðum. Málið komst í hámæli í lok júní í fyrra þegar greint var frá því fjölmiðlum að 30 af 47 stofnfjárhluthöfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar hefðu þegar selt hluti sína í sjóðnum. Nafnverð á hlut væri um 200 þúsund krónur en söluverðið tæpar 50 milljónir. Mikil leynd hvíldi yfir kaupunum og Fjármálaeftirlitið, -sem hafði ekki fengið tilkynningu um að til stæði að mynda virkan eignarhlut í Sparisjóðnum, -hóf rannsókn. Síðan þá hafa bréf gengið á milli fjármálaeftirlitsins, stofnfjáreigenda og lögmanna þeirra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar kom síðan að málinu undir áramót. Málið opnaðist smám saman, í janúar úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að Landsbankinn skyldi afhenda fjármálaeftirlitinu upplýsingar um bankareikninga Lögmanna í Laugardal í tengslum við málið. Lögmennirnir kærðu til Hæstaréttar, -og er úrskurðar að vænta þaðan von bráðar. Til að flækja málið enn frekar, var skipt um nær alla stjórn sparisjóðsins á nýjan leik í janúar, -en í þetta sinn var þó ekki um byltingu að ræða. Allan tímann hefur mikil leynd hvílt yfir stofnfjárhluta-kaupunum, sérstaklega um hvaðan peningarnir til þeirra kæmu. Þetta skýrðist þó að töluverðu leiti í morgun, -en Morgunblaðið greinir frá því í dag að yfirvöld rannskaki nú meðal annars, -hvort fimm tiltekin fyrirtæki, -hafi fjármagnað kaup fjölmargra einstaklinga á stofnfjárbréfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Tvö þeirra eru dótturfélög Baugs, A Holdings og Hagar, -og þaðan kemur megnið af peningunum samkvæmt frétt blaðsins. Fyrirtækin fimm hafi lagt inn rúmlega tvo og hálfan milljarð á banakareikning lLögmanna í Laugardal, -og eitthvað af þessu fé hafi síðan verið greitt til baka. Þetta kemur heim og saman við þær skýringar sem fréttastofa hefur fengið. Að hér hafi verið um að ræða lán.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira