Mótmæla stóriðjuframkvæmdum 10. apríl 2006 22:06
Enn fjölgar þeim hópum í samfélaginu sem eru á móti stóriðjuframkvæmdum. Samtök ferðaþjónustunnar og unglingar í Austurbæjarskóla hafa nú stigið fram gegn stóriðjuframkvæmdum stjórnvalda.Samtök ferðaþjónustunnar skora á iðnaðarráðherra að veita ekki rannsóknarleyfi til virkjunar jarðhita eða vatnsafls að Fjallabaki, í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna nýverið. Samtökin telja að framkvæmdir sem fylgja rannsóknunum geti skaðað hagsmuni ferðaþjónustunnar á svæðinu. Óskar Helgi Guðjónsson, framkvæmdarstjóri Ferðaskrifstofunnar Ultima Thule, segir að Samtök ferðaþjónustunnar álíti svæðið sem um ræðir gríðarlega mikilvægt með ferðaþjónustu í huga. Svæðið sé óspillt og verðmæti svæðisins liggi í því. Óskar segir mikilvægt að ekki verði farið í neinar framkvæmdir á svæðinu nema það sé alveg á hreinu hver ávinningurinn yrði.Unglingar í félagsmiðstöðvarinnar 101, í Austurbæjarskóla, vilja að stjórnvöld kynni allar hliðar stóriðjuframkvæmda fyrir þjóðinni, ekki bara jákvæðu hliðarnar. Unglingarnir vilja að stjórnvöld íhugi aðra kosti til atvinnusköpunar fyrir fólkið í landinu. Kolfinna Nikulásdóttir og Nanna Elísa Jakobsdóttir eru báðar í nemendaráði Austurbæjarskóla. Þær hafa stigið fram fyrir hönd samnema sinna og vakið athygli á málaflokknum. Þær segja að mikil andstaða sé meðal samnema þeirra á stóriðjuframkvæmdum. Þá sé mikilvægt að stjórnvöld kynni allar hliðar málsins fyrir fólkinu í landinu ekki bara þær jákvæðu.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira