Telur dóm ekki hafa fordæmisgildi 13. desember 2006 16:19
Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður og stjórnarformaður OLÍS, telur dóm héraðsdóms yfir stóru olíufélögunum þremur ekki hafa fordæmisgildi fyrir önnur mál sem hugsanlega komi á eftir. Þetta sagði hann í samtalið við fréttastofu Stöðvar 2 skömmu eftir að dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að olíufélögin þrjú, Ker, OLÍS og Skeljungur, skyldu greiða Reykjavíkurborg og Strætó um 78 milljónir króna í bætur vegna ólöglegs samráðs þeirra í tengslum við útboð borgarinnar árið 1996. „Þetta er eina málið af öllum þeim sem voru rannsökuð í þessari stóru rannsókn þar sem að fyrir lá að félögin höfðu viðurkennt að hafa gert samráð um tilboð gagnvart þessum aðila og sammælst um verð. Það var játað fyrir fimm árum þannig að það kemur okkur ekki á óvart að það þurfi eitthvað að borga," sagði Gísli. „Önnur mál eru ekki lík þessu máli að því leytinu til að lögfull sönnun í þeim, hún liggur ekki endilega fyrir," sagði Gísli enn fremur. Aðspurður hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstarétttar sagði Gísli að félagið myndi lesa yfir dóminn og fara yfir rökstuðning héraðsdóms áður en sú ákvörðun yrði tekin. Félögin hefðu þrjá mánuði til að áfrýja.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Sjá meira