Hörð gagnrýni á rektor Háskólans á Akureyri 15. desember 2006 18:17
Rektor Háskólans á Akureyri var óvænt harðlega gagnrýndur á ársfundi skólans í dag. Deilt var á að starfsmannastefnu skorti auk þess sem ófaglega hafi verið staðið að uppsögnum kennara í ár. Rektor vísar því á bug. Ársfundur Háskólans á Akureyri hafði á sér hefðbundið yfirbragð framan af. Farið var yfir rekstur og framtíðarsýn og þökkuðu rektor og framkvæmdastjóri skólans starfsmönnum skilning og farsælt samstarf á erfiðum tíma innan stofnunarinnar. Nú er bjart fram undan að sögn rektors enda komin aukafjárveiting frá ríkinu og búið að hagræða í rekstri með ýmsum hætti. En lengst af ársins einkenndist starfsemin af fjárhagslegri óvissu og varð stjórn skólans að grípa til sársaukafullra sparnaðaraðgerða, fækka deildum og segja upp starfsfólki eins og Stöð 2 hefur greint frá. Undir lok fundarins voru leyfðar fyrirspurnir og þá stóð formaður kennarafélags skólans upp og fór mikinn. Hann sagðist því mjög ósammála að samstarf stjórnar og kennara hefði verið gott í ár og fetti einkum fingur út í tvö atriði. Í fyrsta lagi sagði hann skólann ekki hafa haft neina starfsmannastefnu, þrátt fyrir að haga starfað í 20 ár. Hitt atriðið lýtur að uppsögnum, þar sem góðar vinnureglur við slíkar ákvarðanir hafi verið hunsaðar. Hann segir að uppsagnir hafi verið illa undirbúnar og ódrengilegar og að margt hafi gerst síðan sem sýni að ýmsar ákvarðanir hafi verið mjög misráðnar. Rektor vildi ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna en viðurkennir að starfsmannastefnan sé ekki fyrir hendi enn. Það standi þó til bóta. Að öðru leyti kom fram á fundinum samhugur og mikill vilji til að auka vegsemd skólans og styrkja í framtíðinni.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Sjá meira