OR kaupir hitaveituna í Skorradal 13. desember 2006 17:20
Orkuveita Reykjavíkur skrifaði í dag undir kaup á hitaveitunni í Skorradal. OR eignast þar með borholu og viðeigandi búnað sem Skorradalshreppur átti og veitukerfi sem var í eigu Hitaveitu Skorradals ehf. Samanlagt kaupverð er 28 milljónir króna. en einnig yfirtekur OR áhvílandi skuldir að upphæð 26 milljónir. Orkuveitan tekur við rekstri hitaveitunnar um áramótin. Skrifað var undir kaupsamninga í stöðvarhúsi Andakílsárvirkjunar síðdegis. Undir þá skrifuðu f.h. OR þeir Guðlaugur Þór Þórðarson stjórnarformaður og Guðmundur Þóroddsson forstjóri, f.h. Hitaveitu Skorradals stjórnarmennirnir Magnús Snorrason, Ólafur Eyjólfsson, Davíð Pétursson, Jón Einarsson og Jón Haukur Sigurðsson og af hálfu Skorradalshrepps Davíð Pétursson oddviti og Steinunn Fjóla Benediktsdóttir varaoddviti. Hitaveitan í Skorradal, sem tók til starfa árið 1996, þarfnast orðið talsverðra endurbóta. Hún þjónar hvorttveggja býlum og bústöðum í dalnum en nær þó til tiltölulega lítils hluta þeirrar miklu sumarhúsabyggðar sem þar er. Að mörgu er að huga við enduruppbyggingu veitunnar og mun Orkuveita Reykjavíkur nota næsta árið til að leggja drög að því með hvaða hætti verður staðið að uppbyggingunni. Markmiðið er að veitan þjóni sem best vaxandi markaði fyrir heitt vatn í öllum Skorradalnum eða þar sem hagkvæmt kann að vera að hitaveituvæða. Samningur þessi eykur við starfssemi OR á Vesturlandi en í dag er rekur OR veitur á Akranesi, Hvanneyri, Varmalandi, Bifröst, í Grundarfirði, Borgarnesi, Munaðarnesi, Norðurárdal, Reykholti og í Stykkishólmi. Aðrar veitur OR sem helst sinna sumarhúsabyggðum er að finna á Suðurlandi svo sem í Grímsnesi og í Biskupstungum.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Fleiri fréttir Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Sjá meira